Bændasamtökin hafa brugðist bændum með því að leggja bara aðra hliðina á borðið og gera ekki grein fyrir því hvaða lausnir þau hafa fyrir íslenskan landbúnað og bændur án aðildar að Evrópusambandinu. Ljóst er að það verður að gera gagngerar breytingar á íslenskum landbúnaði hvort sem við förum í ESB eða ekki. Annars blasir við hægfara dauði atvinnugreinar hér á landi. Það er skylda bændahreyfingarinnar að segja frá sinni sýn á framtíð greinarinnar. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Þorsteinn Pálsson: Bændasamtökin hafa brugðist bændum