Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, er ánægð með fylgi flokksins í sveitastjórnarkosningunum. Hún segir ákveðna áskorun fram undan í meirihlutaviðræðum og undirstrikar að Viðreisn muni ekki mynda meirihluta með Miðflokknum.
Í fyrstu tölum í Reykjavík mældist flokkurinn með tvo menn í borgarstjórn.
„Ég er bara mjög jákvæð og glöð og verandi í ríkisstjórn sem þarf að taka oft erfiðar en ekki síður hugrakkar ákvarðanir, það er áskorun og það er líka áskorun fyrir fólkið okkar í sveitarstjórnum,“ segir Þorgerður í samtali við mbl.is á kosningavöku flokksins í Kolaportinu spurð hvernig tölur kvöldsins blasi við henni.
„Þess vegna er ég í rauninni alsæl að sjá að við erum að auka verulega fylgið okkar í Reykjavík. Ég vil samt að sjálfsögðu sjá Þorvald Davíð inn því að hann er ekki bara einstakt eintak af manni heldur mjög mikilvægur fyrir Reykvíkinga.“
Í sókn víða
Þá segir Þorgerður það skipta máli að sjá að Viðreisn er að bæta við sig fylgi víðar.
„Við erum að bjóða til dæmis fram í fyrsta sinn á Skaganum og við erum að ná inn manni þar. Við erum að fá 15% á Ísafirði í fyrsta sinn sem við bjóðum fram þar,“ segir Þorgerður.
Hún segir sömuleiðis ánægjulegt að sjá sókn Viðreisnar í sínum heimabæ, Hafnarfirði, en þar fær flokkurinn tvo bæjarfulltrúa kjörna.
Skýrt að Viðreisn vinni ekki með Miðflokki
Að lokum segist Þorgerður stolt af því að Viðreisn sé búin að reka „heiðarlega, hugrakka og kraftmikla kosningabaráttu“.
„Það er svona ákveðin áskorun núna fyrir flokka, meðal annars Viðreisn en líka aðra flokka sem standa frammi fyrir því að mynda meirihluta.
Það er alveg skýrt að Viðreisn er ekki að mynda meirihluta með Miðflokknum af því að það er einfaldlega mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að það myndist hér sterk, öflug, frjálslynd miðja sem einmitt dregur úr öfgunum í íslensku samfélagi og þar er Viðreisn.“