Jarþrúður Ásmundsdóttir verður formaður Jafnréttissjóðs Íslands að skipan Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Á vef Stjórnarráðsins segir að sjóðnum sé ætlað að veita styrki til verkefna sem stuðla eiga að jafnrétti kynjanna hérlendis og erlendis.
Stofnun sjóðsins var samþykkt á hátíðarfundi Alþingis 19. júní 2015 í tilefni þess að hundrað ár voru liðin frá því að konur fengu kosningarétt. Jarþrúður er viðskiptafræðingur að mennt og hefur einnig MBA-gráðu.
Hún hefur gegnt margvíslegum stjórnunar- og sérfræðistörfum, meðal annars innan stuðningsumhverfis nýsköpunar, eins og það er orðað á vef Stjórnarráðsins, og innan fjármálageirans.
Í stjórn sjóðsins sitja auk Jarþrúðar: Rannveig S. Sigurvinsdóttir, dósent við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík, og Martha Lilja Olsen, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu.
Varamenn eru þeir Bjarni Þór Pétursson, verkefnastjóri hjá Vinnumálastofnun, Stefan C. Hardonk, prófessor við félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands, og Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu.