Halla Tómasdóttir forseti Íslands hefur verið í alþjóðlegri nefnd um gervigreind síðan í sumar. Hún segir markmið nefndarinnar að ræða hvernig hægt sé að nýta gervigreindina til góðs og hvernig hægt sé að varast hætturnar.
Hún var gestur í Silfrinu í kvöld þar sem meðal annars var rætt um gervigreind.
Halla segir að vel sé hægt að nýta gervigreindina til góðs og hefur talað fyrir því. Það sé mikilvægt að setja upp einhvers konar varnir og nefnir í því samhengi þrenns konar varnir sem hún hefur velt mest fyrir sér: að verja börn og ungmenni gegn því að lenda í slæmri stöðu, verjast gegn vaxandi efnavopnaframleiðslu, s.s. kjarnorkuvopnum og öðru, og svo að verjast gegn djúpfölsunum og getu óvinveittra aðila til að hafa áhrif á samtalið í samfélaginu og lýðræðislegt samtal og jafnvel kosningar með fölsunum.
„Akkúrat í dag er mikið af afli gervigreindar ekki að ganga til góðs og það þarf að ákveða að gera það,“ segir Halla.
Risavaxið tækifæri fyrir Ísland
Aðspurð hvað Ísland geti og ætti að gera segir Halla að Ísland standi frammi fyrir risavöxnu tækifæri. Hún segir að Ísland geti auk Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna stigið fram með öðrum hætti heldur en stórveldin eru að gera núna.
Hún segir 75% af reiknigetu gervigreindar vera í Bandaríkjunum þar sem einkageirinn leiði þróunina án nokkurra takmarkana. Kína sé með 15% reiknigetu og þar séu stjórnvöld með leikreglur og einkageirinn sé að bæta skilvirkni.
Í Evrópu er um 5% af reiknigetunni og þar sé verið að setja reglur en margir telja að það sé það flókið og þungt í vöfum að það hamli fyrirtækjum að sækja að sækja þau tækifæri sem liggja þarna.
„Ég hef talað fyrir því að við hérna, sýnum fjórðu leiðina. Þar sem stjórnvöld setja leikreglur um alvarlegustu hlutina og koma í veg fyrir að þeir geti gerst með sveigjanlegu regluverki sem getur þá breyst eftir að við lærum meira,“ segir Halla.
Hún leggur til að einkageirinn fái þá hvata til að gervigreindin sé notuð á ábyrgan hátt til þess að leysa raunveruleg vandamál, en ekki með hvata til að nýta hana í aðra átt. Hún leggur til að Ísland horfi sérstaklega til fyrirtækja sem vinna að því að nota gervigreindina til góðs og skapi landinu sérstöðu með því.
„Ef við ætlum að vera með gagnaver eða fyrirtæki sem vinna með gervigreind þá horfum við sérstaklega til þeirra sem eru að gera það á ábyrgan máta og nýta gervigreindina til góðs, búum okkur til sérstöðu,“ sagði Halla.