Thomas Massie, þingmaður Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, kom samflokksmönnum sínum í opna skjöldu þegar hann krafðist þess að varnar- eða stríðsmálaráðherrann Pete Hegseth yrði kærður til embættismissis og rannsókn málsins færð öldungadeildinni til úrskurðar.
Massie, sem lengi hefur eldað grátt silfur við samflokksmenn sína og Donald Trump forseta, sagði í nokkurra klukkustunda langri ræðu Hegseth hafa misbeitt valdi sínu þegar hann fyrirskipaði hernum að hefja árásir á Íran í febrúarlok án samþykkis þingsins og halda þeim áfram, auk fleiri brota.
Þar á meðal nefndi Massie brottnám Nicolasar Maduro Venesúelaforseta í janúar. Hegseth haldi áfram að ógna ákvæðum stjórnarskrárinnar verði hann áfram við völd. Massie lagði tillöguna fram nokkrum klukkustundum áður en fulltrúadeildin stöðvaði tillögu demókratans Al Green um að Trump skyldi kærður til embættismissis.
Kröfugerð Massies er talsverð að vöxtum og virðist ítarlega undirbúin. Hann kvaðst ekki hafa viljað tilkynna flokksforystunni um áform sín enda hefði hún þá reynt að koma í veg fyrir þau. Forystan kveðst Massie ævareið.
Óðum styttist í að þingið fari í sjö vikna leyfi fyrir miðkjörtímabilskosningarnar í nóvember. Ekki liggur fyrir hvenær þingmenn greiða atkvæði um tillögu Massies, það gæti orðið í vikunni, en mjög ólíklegt þykir að hún hljóti nokkuð brautargengi innan fulltrúadeildarinnar.