Tveggja ára drengur fannst við Nyåker í Svíþjóð í nótt eftir að hafa verið týndur í 15 klukkustundir. Leitin var afar umfangsmikil en drengurinn, sem heitir Lucas, hvarf skyndilega frá heimili sínu í gærmorgun.
Það var hermaðurinn Anders Evenson sem fann hann laust eftir klukkan eitt í nótt í mýrlendi í um 20 mínútna göngufjarlægð frá húsi hans. Hann var blautur og kaldur en að öðru leyti heill á húfi.
„Ég lyfti honum upp og hann hjúfraði sig fast upp að mér eins og lítill björn sem þurfti á mannlegri snertingu að halda.“
Afi drengsins segir það hafa verið erfitt þegar lögreglan kom og ekki vitað hvaða fréttir hún myndi færa. Fregnirnar hafi sem betur fer verið góðar, en hans fyrsta verk þegar heim var komið var að læsa dyrunum.
„Þetta var mjög erfitt, mann verkjar í hjartað.“