„Þetta var í gær, ekki í dag,“ segir Sverrir Fannberg en hann var á ferð um Kjálkafjörð í gær ásamt samstarfsmönnum sínum en þeir tóku eftir bíl sem hafði verið lagt út í kant og ákváðu að athuga hvort það hefði eitthvað komið upp á.
Hringdu í lögregluna
„Við vorum á leiðinni heim af vinnufundi innan úr Búðardal og tókum eftir að bílum var lagt út vegkantinum. Þannig að við stoppuðum til að athuga með þau,“ segir hann en þau hafi svo bent þeim á hvalshræið.
Ferðamennirnir hafi verið búnir að hringja í lögregluna til þess að tilkynna henni um hvalrekann og Sverrir segir lögregluna hafa borið að garði skömmu á eftir þeim sjálfum.
Hann tekur undir með íbúa á svæðinu sem sagði áverka á neðanverðum búk benda til þess að hún hafi háð dauðastríð á nesinu.
„Það var háfjara þegar við komum að henni í gær. Þannig að maður má alveg geta sér til að eitthvað af þessum sárum sé eftir að hafa verið að berjast í steinunum.“
Augun glansi og verði svo hvít
Hún hafi verið mjög illa farin og það hafi verið erfitt að horfa upp á dýrið sem hafi greinilega reynt eftir fremsta megni að komast lífs af. Sverrir telji að hún hafi dáið örskömmu áður en þau komu að hræinu. Hann meti það út frá því hvernig augun litu út. Andarnefjan hafi því ekki verið nýdauð í dag eins og áður kom fram.
„Þú veist með þegar hlutir deyja þá svona glansar yfir augun af þeim fyrst, svo verða þau svona hvít en það hefur ekkert orðið þannig ennþá þarna á þessu tímabili.“
Hefur þú orðið var við hvalreka á Vestfjörðum síðustu mánuði? Áttu myndefni? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is
„Það var svolítið hræðilegt að sjá þetta. Þetta er reyndar búið að vera dálítið oft á landinu núna í sumar,“ segir hann þá en hann muni eftir í það minnsta einu tilfelli þar sem andarnefju rak á land á Vestfjörðum í sumar.
„Hún var nær Patreksfirði en það er búið að vera dálítið um hvalreka að synda upp í fjörur núna,“ segir Sverrir.
„Það er náttúrulega alltaf leiðinlegt að sjá dýrin deyja svona. Út af því að þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma.“
Hefur þú orðið var við hvalreka á Vestfjörðum síðustu mánuði? Áttu myndefni? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is