„Þetta er lögbundin þjónusta sem við eigum áfram að veita – án fjármagns?“

„Þetta er lögbundin þjónusta sem við eigum áfram að veita – án fjármagns?“

„Þetta er lögbundin þjónusta sem við eigum áfram að veita – án fjármagns?“

Samkvæmt nýja fjárlagafrumvarpinu missa sveitarfélögin 1,1 milljarð króna á ári frá ríkissjóði sem áður var eyrnamerktur verkefnum sveitarfélaga við farsæld barna sem þurfa sértækan samhæfðan stuðning. Verkefnastjóri farsældar segir niðurskurðinn setja fjölskyldur og börn sem þurfi á stuðningi að halda í afleidda biðstöðu.

Á við um 6000 börn á landinu öllu og fjölskyldur þeirra

Í farsældarlögum sem tóku gildi árið 2021 var kveðið á um styrk til sveitarfélaga frá ríkinu. Styrkurinn fór í að innleiða farsældarlögin og ráða starfsfólk eins og málastjóra sem halda utan um alla þræði sem snúa að börnum sem þurfa á stuðningi að halda og fjölskyldum þeirra. Markmiðið er að þau fái samþætta og viðeigandi þjónustu á réttum tíma, þannig að þau falli ekki á milli kerfa og létta álagi af foreldrum svo þeir geti sinnt sinni vinnu. Stuðningurinn á við um 6000 börn á landinu öllu. Þetta eru langveik börn, börn með fötlun eða aðrar takmarkanir, erfiðar heimilisaðstæður og fleira.

„Enginn sem bjóst við að þessir útreikningar myndu fara niður í 0 kr.“

Sólveig Norðfjörð starfar sem verkefnastjóri farsældar fyrir nokkur sveitarfélög. Henni brá þegar hún sá að ekki er gert ráð fyrir styrknum í nýju fjárlagafrumvarpi.

„Já, okkur brá. Eftir að innleiðingunni lýkur þá var alltaf gert ráð fyrir því að við myndum fá framlög frá ríkinu. Í lögum um jöfnunarsjóð kemur fram að umframkostnaður vegna samþættingar þjónustu eigi að koma þangað til að við erum farin að sjá fjárhagslegan ávinning af verkefninu. Við vissum að það yrði einhver endurútreikningur en það var enginn sem bjóst við að þessir útreikningar myndu fara niður í 0 kr. fyrir öll sveitarfélögin,“ segir Sólveig.

Sjá fram á uppsagnir og skerta þjónustu við börn

Hún bendir á að í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá júní 2026 komi fram að ríkið þurfi áfram að styðja sveitarfélögin við innleiðingu farsældarlaganna.

„Við erum bara að reyna að finna út úr því hvað við getum gert og vonum auðvitað að þetta endi ekki svona. En ég reikna með að það hljóti að þurfa að segja upp fólki. Það er búið að ráða fólk inn í skólana svo að þetta hefur mikil áhrif og mun skerða þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra,“ segir Sólveig.

Enn sé verið að vinna með mjög þung mál inni í Barnavernd og í skólunum og allt sé gert til að samþætta þá sértæku stuðningsþjónustu sem börnin og fjölskyldur þeirra þurfa. Þetta sé allt gert til að reyna að koma í veg fyrir alvarleg áhrif sem geta komið fram síðar með tilheyrandi þungum kostnaði fyrir ríkissjóð. Kosnaði sem rennur til að mynda í örorku foreldra og dýrum úrræðum fyrir börn sem gætu verið óþörf ef vel er að farsældinni staðið.

„Þetta er lögbundin þjónusta sem við eigum áfram að veita – án fjármagns. Við sjáum ekki fram á að geta veitt sömu þjónustuna án áframhaldandi stuðnings í þessu verkefni frá ríkissjóði til sveitarfélaganna,“ segir Sólveig.

Miklu fjármagni veitt eftir öðrum leiðum

Inga Sæland, barnamálaráðherra segir að þrátt fyrir að framlag í jöfnunarsjóðinn (1,1 milljarður króna) hafi verið fellt brott sé verið að setja umtalsvert meira fjármagn í aukna þjónustu og farsæld barna með öðrum leiðum.

Hverju svarar þú þessum félagsfræðingum, skólastjórnendum og verkefnastjórum farsældar í sveitarfélögunum sem segja að þarna sé verið að þurrka út fjármagn sem þau gerðu ráð fyrir að kæmi frá ríkinu til sveitarfélaganna til að halda áfram því starfi sem þau hafa komið á koppinn en er hvergi nærri lokið?

„Það er meira en komið á koppinn það gengur mjög vel víða. Það eru yfir 6000 börn sem þegar eru farin að nýta sér þess þjónustu, þessa snemmtæku íhlutun sem er orðin að veruleika. Ég segi að sveitarfélögin eru algjörlega komin á þann stað að geta tekið utan um þetta sjálf og ég hvet þessa aðila til að skoða allt þetta fjármagn sem við raunverulega erum að setja inn í sveitarfélögin okkar,“ segir Inga Sæland.

Innleiðingartímabilinu ljúki um áramót

Barnamálaráðherra áréttar að um áramót sé innleiðingartímabili farsældarlaganna lokið. Fjármagn verði nú veitt til sveitarfélaganna með öðrum hætti.

Þá hafi verið lögð fram á Alþingi framkvæmdaáætlun um farsæld bara til ársins 2030 með 16 aðgerðum sem séu að fullu fjármagnaðar.

  • 700 milljónir króna fari enn í verkefni tengd farsæld barna, en renna ekki beint til sveitarfélaganna.
  • Til standi að styrkja þjónustu við börn með fjölþættan vanda um 800 milljónir króna til viðbótar við þá 3,7 milljarða sem þegar hefur verið samið um.
  • Barna- og fjölskyldustofa fái 1 milljarð króna aukalega í fjárlögum næsta árs.
  • 400 milljónum króna verði bætt í þjónustu við börn í viðkvæmri stöðu.
  • 350 milljónir verða settar í að stytta biðtíma eftir þjónustu við börn.

Og svo vill barnamálaráðherra auglýsa 500 milljónir króna sem sveitarfélögin geta sótt um til að styðja við farsæld barna og aðgerðir gegn ofbeldi.

Ráðherra telur að sveitarfélögin muni hagræða og forgangsraða í þágu farsældar barna

„Þetta eru miklir fjármunir sem við erum að setja í málaflokkinn, mjög miklir þannig að þegar við erum að tala um stuðning við ákveðið innleiðingarferli sem þegar hefur verið í 5 ár og er talið að eigi að ljúka um áramótin þá teljum við ekki ástæðu til að halda því í því formi áfram heldur erum við að koma með fjármuni í öðru formi,“ segir Inga.

En sveitarstjórnarfólk sem við höfum rætt við og þessir félagsfræðingar hafa bent á að sveitarfélögin eru búin að leggja út í mikinn kostnað og hafa ráðið til sín fólk, þessa málastjóra og starfsfólk sem á að sinna þessu og hafa núna áhyggjur af því að geta ekki fjármagnað launakostnað og annað sem að þessu snýr út af þessari breytingu í fjárlagafrumvarpinu?

„Já, ég tel að þau muni alveg standa sig í því og hafi borð fyrir báru og þau eru ekki síður klók eins og við hin í að hagræða og forgangsraða fjármununum sínum og ég treysti þeim alveg til þess að ráða fram úr þessu,“ svarar Inga.

En hvaða áhrif mun þetta hafa á börn og fjölskyldur sem þurfa á þessu að halda? Mun vera samfella í þeirra þjónustu áfram þrátt fyrir þetta?

Já, ég hef 100% trú á því. Algjör samfella og ekkert þjónusturof heldur snemmtæk íhlutun áfram. Þannig að ég hef engar áhyggjur af því að við eigum ekki eftir að standa okkur saman, segir Inga.

#lögbundin #sem #við #þetta #þjónusta


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-21-thetta-er-logbundin-thjonusta-sem-vid-eigum-afram-ad-veita-an-fjarmagns-487463

📰 Aðrar fréttir

Ævintýralegt myndband Robert Irwin frá Íslandi slær í gegn
📅 06.11.2026 👁️ 1
Ævintýralegt myndband Robert Irwin frá Íslandi slær í gegn
Robert Irwin birti ótrúlegt myndband frá heimsókn sinni til Íslands sem hefur rækilega slegið í gegn á TikTok með tæplega 200 þúsund „likes“.Robert er...
Vinsæl raunveruleikaþáttaröð tekin af dagskrá eftir ásakanir þriggja kvenna um kynferðisbrot eiginmanna sinna
📅 06.11.2026 👁️ 1
Vinsæl raunveruleikaþáttaröð tekin af dagskrá eftir ásakanir þriggja kvenna um kynferðisbrot eiginmanna sinna
Þáttaröðin Married at First Sight UK hefur verið tekin af dagskrá eftir ásakanir um að tveimur konum hafi verið nauðgað af eiginmönnum sínum á meðan f...
Bianca Censori rifjaði upp gamla takta og mætti fáklædd með stjúpbörnunum
📅 06.11.2026 👁️ 1
Bianca Censori rifjaði upp gamla takta og mætti fáklædd með stjúpbörnunum
Ástralski arkitektinn Bianca Censori hefur látið lítið fyrir sér fara undanfarið en vakti mikla athygli þegar hún mætti ásamt eiginmanni sínum, Kanye ...
Tók nauðgunina upp á síma – maður dæmdur í tvö ár
📅 06.11.2026 👁️ 1
Tók nauðgunina upp á síma – maður dæmdur í tvö ár
Marinel Stingaciu var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun á sextán ára stúlku aðfaranótt 7. október 2024. Stúlkan tók...
Vilhjálmur hjólar í Flokk fólksins: „Ætlar að útrýma fátækt með því að ganga í skrokk á venjulegum Íslendingum“
📅 06.11.2026 👁️ 1
Vilhjálmur hjólar í Flokk fólksins: „Ætlar að útrýma fátækt með því að ganga í skrokk á venjulegum Íslendingum“
Vilhjálmur Bjarnason, hagfræðingur og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega áform Flokks fólksins um breytingar á barnabótake...
Líkt og yfir­völd hafi mestan á­huga á að refsa fyrir vændi - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Líkt og yfir­völd hafi mestan á­huga á að refsa fyrir vændi - Vísir
Þetta kom fram í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem rætt var við Logn Blómdal og Guðnýju Þorsteinsdóttur sem sitja bæði í stjórn Rauðu regnhlífarinna...
Two boys charged over Halloween party stabbings in Chandler's Ford
📅 06.11.2026 👁️ 1
Two boys charged over Halloween party stabbings in Chandler's Ford
Five boys who were guests at the supervised Halloween party on Saturday night were stabbed.
Stefán Vagn ómyrkur í máli: „Þetta er náttúrlega grafalvarlegt mál“
📅 06.11.2026 👁️ 1
Stefán Vagn ómyrkur í máli: „Þetta er náttúrlega grafalvarlegt mál“
Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi yfirlögregluþjónn, hefur þungar áhyggjur af stöðu sérsveitar ríkislögreglustjóra....
Fyrsta nóttin á bak við lás og slá – Augnablikið sem Russell Brand óttaðist
📅 06.11.2026 👁️ 1
Fyrsta nóttin á bak við lás og slá – Augnablikið sem Russell Brand óttaðist
Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand er sagður hafa verið skelfingu lostinn þegar hann eyddi fyrstu nótt sinni á bak við lás og slá eftir að h...
Man seriously injured after being shot in Tenerife
📅 06.11.2026 👁️ 1
Man seriously injured after being shot in Tenerife
A man was seriously injured in a shooting at a residential property in Los Realejos, in the north of Tenerife yesterday, Thursday 5th November. A seco...
Hlutafjárútboð Bláa lónsins hefst í næstu viku
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hlutafjárútboð Bláa lónsins hefst í næstu viku
Hlutafjárútboð Bláa lónsins hf. hefst næsta þriðjudag, 10. nóvember, og lýkur 13. nóvember. Þetta segir í tilkynningu frá félaginu. Gert er ráð fyrir ...
Samfélagslegt læsi
📅 06.11.2026 👁️ 2
Samfélagslegt læsi
Samfélagslegt læsi Þó ábyrgð í rekstri kunni að vera dyggð má ekki gleyma hvað sam­fé­lag er. Það er einn staður sem ég veit um í sam­fé­lag­inu sem æ...
„Ríkar vísbendingar“ um markaðsráðandi stöðu Tix
📅 06.11.2026 👁️ 2
„Ríkar vísbendingar“ um markaðsráðandi stöðu Tix
Frummat Samkeppniseftirlitsins (SKE) segir að „ríkar vísbendingar“ séu um að Tix sé í markaðsráðandi stöðu á markaði fyrir rafræna miðasölu á viðburði...
Íslenskar fernur aftur sendar til brennslu
📅 06.11.2026 👁️ 2
Íslenskar fernur aftur sendar til brennslu
Stjórn Sorpu ákvað í október 2025 að hefja að senda íslenskar fernur aftur til brennslu í stað þess að endurvinna þær.Þessu greinir Heimildin frá.Miði...
Boðið kókaín í fyrsta sinn ellefu ára - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Boðið kókaín í fyrsta sinn ellefu ára - Vísir
Dafne Keen, stjarna Logan, segir að sér hafi verið „boðið kókaín í lokahófum“ 11 ára gamalli en Keen, sem er nú 21 árs, lék í myndinni Logan þegar hún...
Var aðeins 19 ára þegar hann myrti í fyrsta sinn – Óttast að fórnarlömb hans séu fleiri
📅 06.11.2026 👁️ 2
Var aðeins 19 ára þegar hann myrti í fyrsta sinn – Óttast að fórnarlömb hans séu fleiri
Lögreglan í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum hefur upplýst tvö hrottaleg morð sem framin voru með tæplega hálfs árs millibili á áttunda áratug síðustu ald...
Karlmaður í Svíþjóð grunaður um heiðurstengda morðtilraun
📅 06.11.2026 👁️ 2
Karlmaður í Svíþjóð grunaður um heiðurstengda morðtilraun
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa ráðist með hnífi á fyrrverandi eiginkonu sína í bænum Torsby í Svíþjóð síðastl...
Hvíta húsið segir Rubio og Hegseth ekki á út­leið - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hvíta húsið segir Rubio og Hegseth ekki á út­leið - Vísir
Ástæða þess að nöfn þeirra ber á góma er Íransstríðið miðað við umfjöllun miðlanna. Það eigi sérstaklega við um Hegseth en Trump sem og J.D Vance vara...
More than 3,200 migrants reach the Canary Islands in just five days
📅 06.11.2026 👁️ 2
More than 3,200 migrants reach the Canary Islands in just five days
More than 3,200 migrants have reached the Canary Islands aboard 39 boats during the first five days of November, putting renewed pressure on rescue te...
Iceguys bornir þungum sökum - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Iceguys bornir þungum sökum - Vísir
Popparinn Aron Can, rapparinn Herra hnetusmjör, dansarinn Rúrik Gíslason og hafnfirsku poppbræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson skipa sveit Ísgæjanna....
Litlu munaði að steinninn lenti á rútu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Litlu munaði að steinninn lenti á rútu - Vísir
Í gegnum tíðina hefur grjót hrunið við Holtsnúp undir Eyjafjöllum og yfir veginn sem er við rætur fjallsins. Banaslys varð á svæðinu í mars í fyrra þa...
Lést af sárum sínum tæpu ári eftir hryðju­verkaárásina - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Lést af sárum sínum tæpu ári eftir hryðju­verkaárásina - Vísir
Eva Geller var ein þeirra sem særðust í hryðjuverkaárásinni sem var framin á Bondi-strönd í Sydney þann 14. desember í fyrra, er fram kemur í umfjöllu...
9-year-old girl dies after being hit by a car in Lanzarote
📅 06.11.2026 👁️ 2
9-year-old girl dies after being hit by a car in Lanzarote
A nine-year-old girl has died after she was hit by a vehicle in Tías yesterday afternoon, Thursday 5th November, despite attempts by a doctor and para...
Hægari vindur og dálítil væta sunnanlands
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hægari vindur og dálítil væta sunnanlands
Útlit er fyrir suðvestlæga átt á landinu og vindur verður víðast hvar hægari en í gær. Búast má við rigningu af og til sunnanlands. Í öðrum landshlutu...
Er búið að ráða næsta njósnara hennar hátignar? Meðleikari mun hafa kjaftað af sér á djamminu
📅 06.11.2026 👁️ 2
Er búið að ráða næsta njósnara hennar hátignar? Meðleikari mun hafa kjaftað af sér á djamminu
Enski leikarinn Josh O'Connor er næsti James Bond ef marka má slúðrið manna á milli á krám í London.Meðleikari O'Connor í þáttunum Golden Boy er sannf...
Átti aldrei að vera endan­legur dómur um ís­lenska karl­menn - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Átti aldrei að vera endan­legur dómur um ís­lenska karl­menn - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í skriflegum svörum frá Equimundo hugveitunni við fyrirspurn Vísis. Hugveitan gerði rannsókn að beiðni Norrænu ráðh...
Kaupa færri að­gerðir þótt hundruð bíði - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kaupa færri að­gerðir þótt hundruð bíði - Vísir
Með þriggja ára samningum sem kynntir voru í ágúst 2025 átti að stytta biðlistana. Á þessum tveimur listum bíða hins vegar fleiri sjúklingar en áður. ...
8.405 með vernd eða mannúðardvalarleyfi: 281 Palestínumaður í Reykjavík með alþjóðlega vernd
📅 06.11.2026 👁️ 2
8.405 með vernd eða mannúðardvalarleyfi: 281 Palestínumaður í Reykjavík með alþjóðlega vernd
Alls voru 8.405 einstaklingar búsettir á Íslandi 1. október 2026 með gilt dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða mannúðarsjónarmiða og skrá...
Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
📅 06.11.2026 👁️ 2
Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi For­eldrar írskrar stúlku sem lést í bílslysi á Íslandi í lok sum­ars eru í senn þakk­lát Íslandi og sorg­m...
FRIDAY WEATHER: Sunshine for most Canary Islands as new rain front approaches
📅 06.11.2026 👁️ 2
FRIDAY WEATHER: Sunshine for most Canary Islands as new rain front approaches
The Canary Islands will see a mixture of sunshine and cloud today, Friday 6th November, although a new Atlantic front is bringing rain to the western ...
Á­fram hlýtt og von á nokkrum dropum - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Á­fram hlýtt og von á nokkrum dropum - Vísir
Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands en reikna má með suðvestan 3 til 8 metrum á sekúndu en 8 til 13 metrum á sekúndu á norðvestanverðu landinu o...
„Hörkueldur“ í nytjamarkaði - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
„Hörkueldur“ í nytjamarkaði - Vísir
„Já, þetta var hörkueldur,“ staðfestir Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu Vísis. Eld...
Eldur í Nytjamarkaði ABC í Kópavogi: „Þetta leit mjög illa út í byrjun“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Eldur í Nytjamarkaði ABC í Kópavogi: „Þetta leit mjög illa út í byrjun“
Eldur kviknaði í Nytjamarkaði ABC á Smiðjuvegi 2 í Kópavogi í nótt. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um eldinn um klukkan tvö í nótt ...
'Misleading' student loans information left out examples of higher-salary repayments
📅 06.11.2026 👁️ 3
'Misleading' student loans information left out examples of higher-salary repayments
The Treasury Committee chair says she is "shocked" after one university compared repayments to the price of coffee.
Nína Richter skrifar: Fólk sem er betra en þú
📅 06.11.2026 👁️ 2
Nína Richter skrifar: Fólk sem er betra en þú
Mynd Ég sat ráðstefnu á dögunum þar sem gestum voru g
Did a data centre revolt affect the US midterm election results?
📅 06.11.2026 👁️ 2
Did a data centre revolt affect the US midterm election results?
BBC Verify examines whether US voters were influenced by the data centre boom - and the impact anti-AI sentiment could have on the industry.
Spottið 6. nóvember 2026
📅 06.11.2026 👁️ 3
Spottið 6. nóvember 2026
Spottið 6. nóvember 2026
Home Office investigation after BBC catches lawyer offering to make fines go away
📅 06.11.2026 👁️ 2
Home Office investigation after BBC catches lawyer offering to make fines go away
The Home Office said it will be investigating the allegations to see whether there has been a breach of immigration rules.
Ástralir senda herflugvél til að aðstoða við slökkvistarf á Borneó
📅 06.11.2026 👁️ 3
Ástralir senda herflugvél til að aðstoða við slökkvistarf á Borneó
Áströlsk yfirvöld ætla að senda herflugvél til að aðstoða við slökkvistarf á indónesíska hluta Borneó en skógareldar hafa valdið miklu tjóni og mengun...
Ítalskur pizzubakari rekinn eftir að hafa neitað að setja ananas á pizzur
📅 06.11.2026 👁️ 4
Ítalskur pizzubakari rekinn eftir að hafa neitað að setja ananas á pizzur
Ítalski pizzubakarinn Davide Tamburella var rekinn frá veitingastaðnum La Costa í Brisbane í Ástralíu í maí eftir að hafa lent upp á kant við stjórnen...
Úkraína fær 437 milljónir evra í hernaðaraðstoð frá Spáni
📅 06.11.2026 👁️ 4
Úkraína fær 437 milljónir evra í hernaðaraðstoð frá Spáni
Yfirvöld á Spáni ætla að veita Úkraínu 437 milljónir evra í hernaðaraðstoð. Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu tilkynnti um þetta í færslu á X eftir f...
Sósíaldemókrati sigraði sitjandi borgarstjóra í borgarstjórakosningum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sósíaldemókrati sigraði sitjandi borgarstjóra í borgarstjórakosningum
Sósíaldemókratinn Nithya Ramann hafði betur í baráttunni um embætti borgarstjóra Los Angeles og sigraði sitjandi borgarstjóra Karen Bass.Breska ríkisú...
White House denies Hegseth, Rubio will leave jobs amid Republican election fallout
📅 06.11.2026 👁️ 4
White House denies Hegseth, Rubio will leave jobs amid Republican election fallout
The Trump administration has downplayed reports the pair could be on their way out after heavy Republicans election losses.
Could the earliest weakening of the polar vortex on record bring UK snow?
📅 06.11.2026 👁️ 2
Could the earliest weakening of the polar vortex on record bring UK snow?
An unprecedented early weakening of the polar vortex is causing uncertainty amongst experts over the impact it will have on UK weather as Simon King e...
Trump signs order to prevent future presidents from changing Oval Office
📅 06.11.2026 👁️ 4
Trump signs order to prevent future presidents from changing Oval Office
The order comes after Trump made a series of big changes the Oval Office decor and launched landmark construction projects across Washington.
Trump signs order to preserve Oval Office as national monument
📅 06.11.2026 👁️ 1
Trump signs order to preserve Oval Office as national monument
The order comes after Trump made a series of big changes to the decor of the Oval Office and tore down the White House East Wing.
Sir Mark Rowley: Policing is 'heading for failure' without reform
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sir Mark Rowley: Policing is 'heading for failure' without reform
Sir Mark Rowley will argue that the current system is unable to cope with the sophistication of modern criminals.
Utanríkisráðherrann ekki á förum úr embætti
📅 06.11.2026 👁️ 3
Utanríkisráðherrann ekki á förum úr embætti
Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur hafnað fréttum þess efnis að hann ætli að segja af sér embætti til að geta einbeitt sér að framboði ...
Andrew Mountbatten-Windsor received up to £2,000 per month from sub-letting, watchdog reports
📅 06.11.2026 👁️ 3
Andrew Mountbatten-Windsor received up to £2,000 per month from sub-letting, watchdog reports
The income went to the former prince rather than his landlord the Crown Estate.
Fundu rúmlega 3.000 tarantúlur í skítugum sokkum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Fundu rúmlega 3.000 tarantúlur í skítugum sokkum
Rúmlega 3000 tarantúlur fundust í farangri þriggja ferðamanna sem ætluðu sér að smygla köngulónum til Þýskalands. Ferðamennirnir, einn Pólverji og tve...