„Þetta er ekki al­veg ó­vænt“ - Vísir

„Þetta er ekki al­veg ó­vænt“ - Vísir

„Þetta er ekki al­veg ó­vænt“ - Vísir

Hagstofan birti í morgun niðurstöður verðmælinga ágústmánaðar og reyndist verðbólgan vera 5,6 prósent. Með því eru forsendur stöðugleikasamninganna, sem undirritaðir voru fyrir tveimur árum, brostnar. Þar var komist að samkomulagi um forsenduákvæði sem felur í sér að hægt væri að segja samningnum upp ef verðbólga mældist yfir 4,7 prósentum í ágúst 2026.

„Við höfum svona séð þessa mynd teiknast upp. Þetta er ekki alveg óvænt,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, í kvöldfréttum Sýnar. 

Það séu sérstaklega mikil vonbrigði að verðbólgan hafi verið að hjaðna fyrir ári síðan en síðan hafi verið spilað þannig úr málunum að hún jókst á ný.  

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, tekur undir að niðurstaðan hafi verið fyrirsjáanleg.

„En það sem verra er að það hefði mátt fyrirbyggja og þar liggja svona mestu vonbrigðin. Við horfum í það að þegar kjarasamningar voru undirritaðir stóðu vonir til þess að verðbólga gengi niður og stýrivextir myndu fylgja á eftir,“ sagði hún.

„Við erum búin að búa við næstum fjögur ár af háum stýrivöxtum. Verðbólgan og atvinnuleysi eru samt að færast í aukana. Þetta er mjög alvarleg staða.“

Hafi ekki raungerst

Í sumar hafa stjórnvöld, ASÍ og Samtök atvinnuleysisins átt í þríhliða samtali sem Bjarni sagði að hefði mest gengið út á að greina stöðuna. Þau hafi komist að því hvernig kjör ólíkra hópa hafa þróast yfir tímabil kjarasamninganna og átt samtal um aðferðir til að draga úr vægi verðtryggingar.

„Það verður samningsaðilanna að setjast niður. Þeir þurfa að setjast yfir stöðuna. Það liggur fyrir að forsendur eru brostnar og nú þarf að vega það og meta hvort að það kalli á viðbrögð og hvers konar viðbragð þá. Af okkar hálfu er aðaláherslan á það að baráttan við verðbólguna verður að halda áfram og viðbragðið verður að endurspegla það,“ sagði Bjarni.

Halla sagði kjaramálin vera á eins konar núllpunkti. Eftir síðustu undirritun hafi þau vonast eftir því að stóru fyrirtækin sem hafi verðmótandi áhrif myndu halda aftur af verðhækkunum og ríki og sveitarfélög myndu stilla gjaldskrárhækkunum í hóf.

„Hvorugt af þessu hefur raungerst,“ sagði hún og bætir við að hennar fylking sé afar ósátt við það andvaraleysi sem hafi einkennt stöðuna.

„En við erum mætt í þetta samtal lausnamiðuð og viljum leggja okkar af mörkum. Stjórn VR er mjög ákveðin í því og fagfélögin sem við erum í samstarfi við að ef ekkert kemur til þá sé óhjákvæmlegt að segja upp kjarasamningum.“

Laun almennt hærri en samið var um

Halla sagði að leita þurfi mögulega að einhverri leiðréttingu á stöðunni sem upp sé komin.  Kjarasamningsbundin laun hafi minnkað minna en verðbólga og þrengt hafi mikið að barnafólki sem átti að passa. 

„Síðan þessa skuldbindingu, á því og við þurfum að hafa eitthvað í hendi þar, ekki bara falleg orð um að fyrirtæki séu tilbúin að taka þátt í þessu og draga úr verðhækkunum og um að stjórnvöld ætli ekki að kynda undir þessu báli.“

Bjarni sagði að almenn laun í dag væru hærri en samið var um í kjarasamningunum. 

„Við erum komin á það að launastigið á Íslandi er með því hæsta sem fyrirfinnst í Evrópu. Hlutfall af verðmætasköpun sem fer í launagreiðslu er mjög hátt á Íslandi. Gengið er sterkt, vextir eru háir og verðbólguvæntingar eru talsverðar, of miklar. Fyrir umhverfi fyrirtækjanna er staðan ekkert góð,“ sagði hann.

Á endanum snúist málið um getu fyrirtækja til að standa undir háum launum. Það gangi ekki að búa við hátt vaxtastig, mikla verðbólgu fram undan og ósamkeppnishæft skattaumhverfi.

„Það er í sjálfu sér mjög eftirsóknarvert að geta búið í umhverfi þar sem hægt er að greiða hvað hæstu laun í heiminum. En þá þurfa hin ytri skilyrði að vera til staðar,“ sagði Bjarni.

„Eins og ég segi, launin í dag eru hærri en um var samið. Þannig að það er varla mikið að sækja til fyrirtækja í launaliðnum. Ég held hins vegar að á komandi vikum munum við sameiginlega. Við skoðum gögnin sem hafa verið unnin og liggja til grundvallar þessari stöðu.“

#alveg #ekki #vísir #óvænt #þetta


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262927034d/-thetta-er-ekki-alveg-ovaent-

📰 Aðrar fréttir

Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
📅 12.10.2026 👁️ 0
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
Stjarnan úr Mean Girls, Daniel Franzese, hefur opnað sig um hvernig honum tókst að léttast um 65 kg.„Ekkert áfengi, enginn sykur, æfingar fjórum sinnu...
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 0
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Ástin blómstrar Ástin blómstar hjá grafíska hönnuðinum og lisakonunni ...
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 0
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlaba...
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
📅 12.10.2026 👁️ 0
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
„Við höfum heyrt bara í gegnum lyfjastofnanasamstarf, og í lyfjafræðiheiminum, að það er rosa algengt að þegar fólk er að taka inn svartamarkaðslyf, þ...
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 0
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
Þegar Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti hann mestöllum stuðningi við Úkraínu en bandamenn Úkraínu í Evrópu hafa keypt flu...
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 0
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
Í dagbók lögreglu segir að fjórir hafi verið hýstir í fangaklefa í morgun. Þar er einnig sagt frá því að eldur hafi kviknað í mannlausum bíl fyrir uta...
Vilja árleg þjóðarsamtöl
📅 12.10.2026 👁️ 2
Vilja árleg þjóðarsamtöl
Niðurstöður Samtalsins voru kynntar í Hörpu í gær. Samtalið fór fram á laugardag, þegar fólk settist niður í rúmlega 20 skólum víða um land og reyndi ...
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
📅 12.10.2026 👁️ 2
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
Addressing the Commons, Burnham is expected to say that a new deal with the EU could help tackle illegal immigration and boost economic growth.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
📅 12.10.2026 👁️ 2
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, BBC finds.
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
📅 12.10.2026 👁️ 3
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
Yfirvöld í Alsír greindu frá því í gær að 61 Marokkómaður hefði verið handtekinn fyrr í þessum mánuði vegna gruns um að vera að leggja á ráðin um skem...
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
📅 12.10.2026 👁️ 3
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
Einn var drepinn og ellefu særðust í árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi Arabíu, í gærkvöld. Hútar hafa lýst yfir ábyrgð á mannskæðri árá...
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
📅 12.10.2026 👁️ 3
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að Rússar hafi gert árásir á orkuinnviði í Kyiv og Kharkiv í gær eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti grein...
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
📅 12.10.2026 👁️ 4
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
Fimm er saknað eftir skyndiflóð í Gorkha-héraði í Nepal í dag um hundrað kílómetra frá höfuðborginni Katmandu.Flóðið hreif með sér 45 hús þegar skriða...
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
📅 11.10.2026 👁️ 2
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
The critically endangered apes were rescued from intense wildfires that destroyed their habitat in August and September.
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
📅 11.10.2026 👁️ 4
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
Donald Tusk forsætisráðherra Póllands greindi frá handtökunni í færslu á X og hrósaði lögreglunni fyrir skjót og góð viðbrögð.Greint var frá því í dag...
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
Hópurinn heldur í leiðangurinn á vegum Purdue-háskóla í Indiana í Bandaríkjunum og ALI (Archaeological Legacy Institute). Gert er ráð fyrir að áhöfnin...
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
Landsvirkjun þurfti að leggja af starfsemi í höfuðstöðvum sínum við Háaleitisbraut 68 eftir að myglu varð þar vart 2022.Líklega er ekkert stórhýsi á h...
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
📅 11.10.2026 👁️ 2
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
Brad Smith calls for global rules on AI, and says the UK is in the "best position" to lead the charge.
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
📅 11.10.2026 👁️ 4
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
Lögreglunni í Suður-Jórvíkurskíri á Englandi barst tilkynning um að maður hefði farið inn á afgirt svæði tígrisdýrs í dýragarðinum Yorkshire Wildlife ...
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
Úkraínumenn búa sig undir veturinn sem óttast er að verði erfiður. Tanya Korolenko, sem býr í höfuðborginni Kyiv, segir stöðugar drónaárásir reyna mei...
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
Þetta segir Andrea Örk Bernhöft, nítján ára, sem hefur glímt við áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD, frá barnæsku. Fyrstu einkennin komu fram þegar h...
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
Viktor Freyr ljósmyndari Vísis var á Austurvelli fyrr í dag og fangaði þessar myndir. Rúmlega 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um verndun Se...
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samkomulag...
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
📅 11.10.2026 👁️ 4
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
All asylum applications would be rejected and existing ones voided, with all claimants marked for deportation.
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
📅 11.10.2026 👁️ 4
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
Gömlu viðarkjörkassarnir, sem hefur verið skipt út fyrir plast, fá framhaldslíf víða um land. Akureyringur, sem tryggði sér tvo kassa í vikunni, segir...
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samstarfið hafi verið undirritað nú í kvöld og byggi á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrg...
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
📅 11.10.2026 👁️ 4
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
Mahmoud Abbas, 90 ára forseti Palestínsku heimastjórnarinnar, hefur enn á ný frestað þingkosningum á palestínsku svæðunum. Abbas var kjörinn forseti á...
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti svokallað orkuvopnahlé milli Rússlands og Úkraínu á færslu sinni Truth Social fyrr í dag. Vólódímír Selenskí ...
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
Við erum að tala um tengdamömmusögurnar! Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem h...
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
📅 11.10.2026 👁️ 5
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
Mótmæli voru haldin á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík í dag gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þús...
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
Frá september 2024 hafa lögreglumenn borið rafbyssur við skyldustörf sem valdbeitingartæki. Á þeim tíma hefur slysum þeirra fækkað umtalsvert. Til vin...
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að það sé „köld tuska“ í andlitið á Úkraínumönnum og stuðningsþjóðum þeirra að Donald Trump Bandaríkja...
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
📅 11.10.2026 👁️ 4
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti fy...
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
Unnur segist taka því hlutverki mjög alvarlega að sveitarfélögin í landinu beri ábyrgð á menntun grunnskólabarna. „En til þess að geta lagað það sem s...
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Dómsmálaráðuneyti Ban...
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
📅 11.10.2026 👁️ 4
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
Rescuers moved the apes after their habitats were threatened by intense wildfires over the summer.
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
Sæll og takk fyrir einlæga spurningu. Stutta svarið er já. Það sem þú lýsir er eðlilegt og það er ekkert mótsagnakennt við að sakna konunnar þinnar sá...
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
Mynd Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
Dýragarðurinn í Jórvíkurskíri á Englandi hefur tilkynnt að tígrisdýrið sem varð manni að bana í gær verði ekki aflífað.Tígrisdýrið réðst á manninn þeg...
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
📅 11.10.2026 👁️ 4
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
Lewis Hamilton's incorrect strategy call during the Singapore Grand Prix means Kimi Antonelli can win the world title at the next race in Austin.
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
Austfirðingar og Eyjamenn vilja ekki vera í sama lögregluembætti og hafa óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra. Hún hefur boðað fækkun lögregluembætt...
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
Er þetta meðal þeirra 69 mála skráðu í kerfi lögreglu í dag. Innbrotin áttu sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sinnir útköllum í Miðbæ, Vestur...
Man City: Prime Minister Andy Burnham to release details of his meetings with Man City owners
📅 11.10.2026 👁️ 4
Man City: Prime Minister Andy Burnham to release details of his meetings with Man City owners
Andy Burnham has faced criticism for comments he made in the wake of Manchester City being found guilty of all charges related to breaches of the Prem...
PM says it is 'clear' Russia interfered with Brexit referendum
📅 11.10.2026 👁️ 4
PM says it is 'clear' Russia interfered with Brexit referendum
He says voters were not "sufficiently" informed about how foreign actors sought to disrupt UK democracy.
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
Einn maður var handtekinn fyrir ofbeldi í heimahúsi í dag, í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem er Breiðholt og Kópavogur. Þetta kemur fram í dagbók lögreg...
Segir leigubremsu lækka verðbólgu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Segir leigubremsu lækka verðbólgu
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um leigubremsu hefur vakið miklar deilur og seðlabankastjóri sagði áformin vera heimskuleg. Stefán Ólafsson, hagfræðiprófe...
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu Vís­inda­menn rann­saka rúst­ir borg­ar sem hef­ur leg­ið und­ir vatni í Kirg­ist­an u...
Fær auka­dag til stjórnar­myndunar - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Fær auka­dag til stjórnar­myndunar - Vísir
Þetta tilkynnti þingforsetinn Andreas Norlén, fulltrúi Moderaterna, eftir hádegið en hann mun hitta Andersson á þriðjudagsmorgun þar sem hún getur ann...
Fleiri risaskjaldbökur á Seychelles-eyjum en íbúar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Fleiri risaskjaldbökur á Seychelles-eyjum en íbúar
Frjálsar risaskjaldbökur eru mun fleiri en áður hefur verið talið.Ný talning hefur leitt í ljós að um 180 þúsund Aldabra-risaskjaldbökur eru á Aldabra...