Mörg börn búa við krefjandi aðstæður og þarfir þeirra eru miklu meiri en hjálparsamtök geta annast, að sögn framkvæmdastjóra UNICEF. Þjóðarleiðtogar þurfi að koma saman og gera betur fyrir börn heimsins.
„Ég tel þetta mjög erfiðan tíma í heiminum til að vera barn,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. Hún er stödd hér á landi á ársfundi leiðtoga landsnefnda UNICEF og tók þátt í pallborðsumræðum með Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands í dag.
Eitt af hverjum fimm börnum í heiminum býr við stríðsátök. Það eru um 520 milljónir barna. Ef þau væru íbúar eins ríkis væri það þriðja fjölmennasta ríki heims, á eftir Kína og Indlandi. Helmingur barna í heiminum býr í löndum þar sem hætta vegna loftslagsbreytinga er til staðar.
„Þess vegna er staða barna mjög, mjög alvarleg. Við hjá UNICEF gerum okkar besta til að bregðast við stöðunni og reynum að tryggja að börn séu heilbrigð, gangi í skóla og njóti verndar en við önnum þörfum barna engan veginn.“
„Sannleikurinn er að við þurfum meira fjármagn“
Hlutfall barna sem þarfnast hjálpar stækkar á meðan fjármagn til þróunaraðstoðar er skorið niður um allan heim. Russell segir niðurskurðinn skaðlegan börnum. UNICEF hafi hagrætt mikið til að mæta þessum kostnaði.
„Sannleikurinn er að við þurfum meira fjármagn. Eins og ég segi alltaf eru til nægir peningar í heiminum, við þurfum bara að sjá til þess að þeir renni til þeirra sem minnst mega sín og þurfa mesta hjálp, sem oft eru börnin.“
Russell var nýlega í Afríku og heimsótti meðal annars Súdan, Suður-Súdan og Sómalíu. Hún segir börn þar verða fyrir ótrúlegu ofbeldi, sem sé nánast ekki hægt að ímynda sér. Mörg standi frammi fyrir hungri, séu á flótta og komist ekki í skóla.
„Getum við jarðarbúar ekki komið saman og gert betur fyrir börnin? Hugsað um lausnir á vandamálunum í stað þess að láta mannúðarsamtök tína upp brotin, sem við neyðumst til að gera. Það er mjög erfitt og reynir mikið á. Allt fullorðið fólk í heiminum þarf að taka sig á og standa sig betur fyrir börnin“
Börn 25% þeirra sem hafa látist af völdum ebólu
Að minnsta kosti einn af hverjum fjórum sem hafa látist af völdum ebólu í faraldrinum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó eru börn, að sögn Barnaheilla.
Faraldurinn breiðist hratt út og átök á svæðinu hamla viðbrögðum heilbrigðisstarfsfólks. Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar varar við árekstri sjúkdóma og átaka. Ekki sé hægt að bregðast við faraldrinum meðan sprengjur falli.
Yfirvöld í Kongó hafa staðfest að 17 hafi látist úr sjúkdómnum. Grunur er um rúmlega 200 dauðsföll og yfir þúsund sýna einkenni. Russell segir faraldurinn mikið áhyggjuefni.
„Þessi útbreiðsla er mikið áhyggjuefni. Veiran breiðist hratt út. Innviðir í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og Úganda eru ekki sterkir. Við hjá UNICEF erum þar og gerum allt sem við getum.“
UNICEF hafi flutt mikið af búnaði, meðal annars hlífðarbúnaði, á staðinn.
„Við reynum að hjálpa samfélaginu að bregðast við erfiðleikunum eins rækilega og hægt er til að stöðva útbreiðsluna. Börn eru sannarlega viðkvæm fyrir ebólu og sjúkdómurinn er hræðilegur, alveg skelfilegur. Við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að byggja upp heilbrigðisinnviði svo ríkin geti sjálf tekist á við vandann, sem þau geta ekki núna.“