Um 200 skjálftar hafa mælst í skjálftahrinu á Reykjaneshrygg sem hófst fyrir um sólarhring, en skjálfti að stærð 2,9 mældist um klukkan hálf sjö í kvöld.
Sá stærsti í hrinunni varð um klukkan fimm í morgun en hann var 3,5 að stærð. Sá skjálfti fannst meðal annars á Akranesi.
Samkvæmt náttúruvársérfræðingi á Veðurstofu Íslands hefur hægt og rólega verið að draga úr skjálftavirkninni í dag. Áfram megi þó búast við einhverjum skjálftum í nótt og á morgun.
Engar hreyfingar á GPS-tækjum
Elísabet Pálmandóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir skjálftahrinuna þó ekki bera þess merki að vera fyrirboða um eitthvað annað og meira.
„Nei, við erum ekki að sjá neinar hreyfingar á GPS-tækjunum, ekki neinn óróa eða neitt svoleiðis. Þetta er reyndar bara á akkúrat þarna á flekaskilunum og við sjáum jarðskjálftahrinur þarna út af Reykjaneshrygg alveg öðru hverju,“ útskýrir hún.