Mun færri strokuminkar hafa fundist í Mosfellsdal eftir því sem liðið hefur á helgina. Forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar telur það til marks um að færri dýr hafi sloppið út fyrir varnargirðingar en talið var í upphafi.
Síðan þúsundir minka sluppu úr loðdýrabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal á miðvikudaginn, eftir innbrot og skemmdarverk, hefur allra leiða verið leitað við að handsama þá. Minkaskyttur og leitarhundar kallaðir til og á annan tug gildra var settur upp víða um dalinn.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar stjórnar þessum aðgerðum.
Engir minkar gengu í gildrur síðasta sólarhringinn
Gylfi Þór Þorsteinsson, forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, segir að engir minkar hafi komið í gildrurnar síðasta sólarhringinn. Í gildrunum, sem eru vírbúr, er æti, sem eldisminkar girnast, fari þeir inn í gildruna lokast hún. Þeirra er svo vitjað að minnsta kosti þrisvar á sólarhring.
Bæjarstjórnin fær ráðgjöf sérfræðinga í þessu verkefni. „Þeir eru mjög jákvæðir, að við séum að komast fyrir vind með þetta. Vegna þess að það er svo lítið sem hefur verið að finnast núna síðustu tvo daga,“ segir Gylfi Þór.
Enn er fjöldi minka innan varnargirðingar umhverfis Dalsbú og þar er sömuleiðis unnið hörðum höndum að því að handsama þá. Þeir sem nást innan girðingar fara aftur inn í búið.
Tíu þúsund minkum var sleppt
Ásgeir Pétursson loðdýrabóndi á Dalsbúi segir að engar frekari vísbendingar hafi borist um hver beri ábyrgð á skemmdarverkunum.
„Þeir slepptu út 10.000 minkum, við vitum það núna,“ segir Ásgeir. Að minnsta kosti 500 - 600 strokudýr hafa verið drepin, eða drepist í náttúrunni. Þeim er safnað saman í fiskikerjum, sem Ásgeir hefur nú sett í frysti minkabúsins til að hræin úldni ekki.
Spurður hvort hann viti fyrir hversu miklu fjártjóni hann hefur orðið nú þegar vegna innbrotsins og skemmdarverkanna, segir hann það ekki liggja fyrir.
„Það er hrein ágiskun. Ég get alveg giskað á 30-40 milljónir. Alveg hiklaust.“