Þetta er meðal þess sem fram kom í ræðu ráðherrans á alþjóðlegum kynningardegi innviðafélagsins í Hörpu í dag. Þar var fjallað um þau innviðaverkefninu sem félaginu er ætlað að undirbúa, fjármagna og framkvæma á næstu árum og hvernig staðið verður að útboðum. Auk Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra voru meðal þátttakenda Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Daði Már Kristófersson fjármála-og efnahagsráðherra.
Í ræðu sinni rifjaði Eyjólfur upp að öflugar samgöngur hefðu verið grundvöllur sjálfstæðis Íslands allt frá upphafi. Hvalfjarðargöng hafi á saínum tíma markað tímamót á Íslandi og meira en tuttugu ár liðið þar til næsta sambærilega verkefni, Vaðlaheiðargöng, voru opnuð á Norðurlandi. Mikill pólitískur áhugi hafi verið að ráðast í frekari verkefnum en lítið gerst á sama tíma.
„Sem dæmi má nefna að Sundabraut, eitt af fyrstu verkefnum félagsins, er án efa þjóðhagslega hagkvæmasta verkefni Íslandssögunnar. Hún mun gjörbylta samgöngum og draga úr akstri á höfuðborgarsvæðinu um hundrað og fimmtíu þúsund kílómetra á dag. Við erum sameinuð í metnaði okkar til að auka fjárfestingu í íslenska samgöngukerfinu til að efla öruggar og áreiðanlegar samgöngur og nýta hina miklu möguleika íslensks efnahagslífs og samfélags.“