Dvalið var í sumarhúsinu þegar eldurinn kom upp en allir komust út og enginn er talinn slasaður. Um er að ræða sumarhúsið við Birkilund 12 í landi Miðfells.
Lárus Kristinn Guðmundsson, settur slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, segir lítið vitað um eldsupptök á þessu stigi og þau verði rannsökuð af lögreglu. Búið var að slökkva í glóðum um klukkan eitt en tilkynning barst um eldinn um klukkan 21:20.
„Það þurfti að flytja vatn þangað og við þurftum að sækja það með tankbílnum en það gekk bara mjög vel,“ segir Lárus.
Slökkviliðsmenn frá Selfossi og Laugarvatni tóku þátt í slökkvistarfinu.
Sumarhúsið stóð um tíma í ljósum logum. Lárus beinir því til sumarhúsaeigenda að huga að almennum eldvörnum og fjarlægð frá gróðri. „Þarna var stutt í gróður en slökkviliðsmenn náðu að halda því niðri.“
Veistu meira um málið? Áttu myndefni eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.
Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um lok slökkvistarfs.
Veistu meira um málið? Áttu myndefni eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.