Masud Gharahkhani, forseti norska Stórþingsins, hefur ákveðið að stytta heimsókn sína til Íslands vegna versnandi ástands Haralds Noregskonungs. Þá hefur Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs hætt við ferð sína til Þýskalands í dag. Einnig hefur Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu, sem afplánar nú fangelsisdóm fyrir utan Osló fengið að fara á sjúkrahúsið til að hitta konunginn.
Styttir ferðina til Íslands og Mariusi hleypt úr fangelsi til að heimsækja konunginn