Flugvél sem Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti ferðaðist með frá Móldóvu til Óslóar í gærkvöld varð næstum fyrir dróna þegar hún var að taka á loft. Frá þessu greinir Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs í viðtali við norska ríkisútvarpið, NRK. „Þetta er raunveruleikinn sem hann býr við,“ segir Støre.
Zelensky var við útför Haraldar V Noregskonungs í Ósló í dag. Hann nýtti ferðina og fundaði með norskum ráðamönnum í gærkvöld og í dag.
„Ég spurði hann hvernig nóttin hefði verið og hann sagði að þetta hefði ekki verið góð nótt því hann hefði verið í símanum til að fá fregnir af því hvar skotflaugar Rússa hefðu komið niður,“ segir Støre um fund þeirra Zelenskys í dag.
Tveir voru drepnir í loftárás Rússa á landamærastöð milli Úkraínu og Moldóvu í nótt. Einn var drepinn og fjórtán særðust í drónaárás á níu hæða fjölbýlishús í höfuðborginni Kænugarði.
Auk Støres funduðu Jens Stoltenberg fjármálaráðherra og Espen Barth Eide utanríkisráðherra með Zelensky á Plaza-hótelinu í gærkvöld. Þar var þörf Úkraínu fyrir frekari loftvarnir helsta umfjöllunarefnið.
Støre vildi ekki greina frá því hver niðurstaða fundarins hefði verið en sagði það til skoðunar innan varnariðnaðarins hvort hægt væri að skaffa frekari loftvarnir eða finna lausn sem gæti gert Úkraínumönnum kleift að framleiða loftvarnarkerfi heima fyrir.
Zelensky flaug frá Ósló fyrr í dag.