Gera má ráð fyrir að margir leggi leið sína norður og austur á land um helgina þar sem spáð er blíðviðri og allt að 27 stiga hita.
Á tjaldsvæðinu á Húsavík er nú þegar margt um manninn, en veðurspá laugardags sýnir allt að 21 stigs hita, örlitla golu og heiðskíran himin. Srepen Ævar, tjaldvörður á Húsavík, segir tjaldsvæðið vel undirbúið til að taka á móti sólarþyrstu fólki um helgina og að enn sé hægt að næla sér í tjaldstæði.
„Það er í rauninni alltaf mikið að gera hérna á tjaldsvæðinu á Húsavík svo að við erum í góðri þjálfun,“ segir Srepen hress. Aðspurður segir hann tjaldsvæðið bjóða upp á 80-90 tjaldstæði en bætir því við að nákvæmur fjöldi fari alltaf eftir því hve margir gisti í húsbíl og fellihýsi. „Við höfum valmöguleika á að nýta okkur aflíðandi grasflöt til hliðar við tjaldstæðið og getum þannig bætt við fleiri tjaldstæðum ef til þess kemur.“