Stórsigur AfD í Saxen Anhalt í Þýskalandi

Jón Magnússon skrifar:
Svo virðist sem að AfD (annar valkostur fyrir Þýskaland)hafi fengið 44.5% fylgi í ríkiskosningunum í fylkinu Saxen Anhalt. Gangi þetta eftir er um ævintýralegan stórsigur að ræða.
Allt hefur verið og er gert til að koma í veg fyrir að AfD komist nokkursstaðar í stjórn. Eftir síðustu kosningar til þings ákvað Friedrich Merz formaður CDU að mynda ríkisstjórn með Sósíalistum sem töpuðu mestu fylgi í stað þess að mynda ríkisstjórn með AfD. Það var blaut tuska framan í allt hægra fólk í Þýskalandi. Nú er svo komið að þetta ríkisstjórnaróbermi á sér formælendur fáa.
Merz hefur gengið fram fyrir skjöldu til að koma í veg fyrir samstarf við AfD. Með því gulltryggir hann vinstri stjórn til frambúðar. Merz stuðlar að völdum kommúnista en hafnar AfD.
AfD er kallaður öfgahægriflokkur vegna þess að flokkurinn vill ná stjórn á landamærunum og loka á hælisleitendur og senda ólöglega hælisleitendur heim til sín.
Flokkurinn vill endurskoða aðild Þýskalands að ESB og krefst þess að gjöld og skattar sem ESB leggur á fólk og fyrirtæki m.a. vegna loftslagsmála verði lögð niður þannig að Þýskaland verði á ný samkeppnishæft.
Forustumaður AfD í Saxen Anhalt segist ekki vilja taka við stjórn í fylkinu nema fá hreinan meirihluta. Það virðist ekki ætla að ganga eftir. En hann segir að nái flokkurinn ekki því takmarki þá breytist ekkert.
Hvað sem öðru líður þá er AfD eina hreyfiafl breytinga í pólitík í Þýskalandi og landið þarf nauðsynlega á breytinum að halda eftir kyrrstöðutímabil samsteypuóstjórnar Merz kanslara.