Þýska stórfyrirtækið Altano, sem sérhæfir sig í hestalækningum, hefur keypt þrjá dýraspítala á Íslandi.
Tveir þessara dýraspítala eru á Norðurlandi, í Glæsibæ í Skagafirði og Lögmannshlíð á Akureyri og einn enn, Drösull í Kópavogi, sem sérhæfir sig í hestalækningum. Kaupverðið er 625 milljónir. Það skiptist þannig að fyrir Dýraspítalann Lögmannshlíð voru greiddar 285 milljónir, fyrir Dýraspítalann Glæsibæ 223 milljónir og fyrir Drösul 147 milljónir.
Höfuðstöðvar Altano Group eru í Þýskalandi og er fyrirtækið með 700 dýralækna að störfum í 30 fyrirtækjum víðs vegar um heiminn. Altano hefur á undanförnum árum keypt marga dýraspítala víðs vegar um heiminn. Meðal annars ellefu spítala í Danmörku og tvo í Svíþjóð sem sérhæfa sig alfarið í hestum. Altano á nú fleiri en 100 dýraspítala víða um heim og er með um 2.600 starfsmenn.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.