Eigendur Hótels Hjarðarbóls í Ölfusi leita nú að meðfjárfestum og samstarfsaðilum fyrir umfangsmikla uppbyggingu ferðaþjónustu á jörðinni Hjarðarbóli, sem staðsett er á milli Hveragerðis og Selfoss. Nú þegar hafa verið teiknaðar upp hugmyndir að nýju hóteli og frekari uppbyggingu á svæðinu þar sem lögð verður áhersla á sjálfbærni og vistvænar lausnir.
Hótel Hjarðarból er rekið af eigendum jarðarinnar, hjónunum Sigríði Helgu Sveinsdóttur og Guðbrandi Sigurðssyni. Að þeirra sögn hefur eftirspurn eftir vistvænni gistingu aukist verulega á síðustu árum og telja þau tækifæri felast í frekari uppbyggingu í Ölfusi.
„Við höfum séð mikla breytingu á ferðaþjónustunni undanfarin ár þar sem sífellt fleiri ferðamenn sækja í rólegra umhverfi og nálægð við náttúruna, utan stærstu þéttbýliskjarna landsins,“ segir Guðbrandur.
Áformin gera ráð fyrir nýju hóteli ásamt frekari uppbyggingu tengdri ferðaþjónustu. Meðal þess sem horft er til í verkefninu eru lausnir tengdar vindorku, nýtingu heits vatns og uppbyggingu hleðslustöðva fyrir ferðamenn. Samkvæmt eigendunum verður lögð rík áhersla á sjálfbærni í allri uppbyggingu verkefnisins.

„Við viljum halda áfram að þróa Hjarðarból með ábyrgum hætti og sjáum mikil tækifæri í sjálfbærri ferðaþjónustu á svæðinu. Hugmyndirnar hafa þegar verið teiknaðar upp og nú leitum við að aðilum sem hafa áhuga á að koma að verkefninu með okkur,“ segir Sigríður.
Á jörðinni er einkavatnsveita sem hjónin byggðu sjálf fyrir reksturinn, en þau segja mikilvægt að halda vel utan um innviði á svæðinu enda fylgi því ákveðin ábyrgð að reka þjónustu á landsbyggðinni.
„Við höfum alltaf lagt áherslu á að vanda til verka og byggja upp starfsemi sem fellur vel að umhverfinu. Það skiptir okkur miklu máli að þeir gestir sem hingað koma upplifi bæði góða þjónustu og þá náttúru sem svæðið hefur upp á að bjóða,“ segir Guðbrandur.
Hótelið hefur frá upphafi tekið á móti ferðamönnum af fjölmörgum þjóðernum auk skólahópa og annarra ferðahópa sem sækja í gistingu í grennd við helstu ferðamannastaði Suðurlands. Að sögn hjónanna hefur staðsetning Hjarðarbóls reynst vel, bæði vegna nálægðar við þjónustu og vegna þeirrar kyrrðar sem svæðið býður upp á.