Stóra-Ísrael og þjóðarmorðið
Ísrael er land án landamæra í stöðugri útþenslu með aðferðum sem alþjóðastofnanir kenna við þjóðarmorð.
Ungbarn er skotið í höndum móður, byggðum eytt í Líbanon og grafreitir Palestínumanna á Gasasvæðinu jafnaðir við jörðu á meðan talað er um að liðka fyrir „sjálfviljugum brottflutningi“ þeirra og landnámi Ísraelsmanna.
Svo vill til að atburðirnir falla að hugmyndafræði, stefnu og draumsýn sumra Ísraelsmanna, sem nú eru við völd, um hið svokallaða Stóra-Ísrael, eða Greater Israel. Hugmynd var hluti af stofnun Ísraelsríkis, sem lýsti yfir sjálfstæði án skilgreindra landamæra.
Súper-Sparta í Miðausturlöndum
Núverandi ríkisstjórn Ísraels, undir forsæti Benjamíns Netanjahús, samanstendur af fimm flokkum og er talin sú lengst til hægri sem mynduð hefur verið í landinu.
Forsætisráðherrann sagðist í viðtali í ágúst í fyrra vera „mjög svo“ tengdur við hugmyndina um „Stóra-Ísrael“.
Nágrannaríki Ísraels kröfðu Netanjahú um skýringu á því hvað hann meinti með orðunum. Enda er óljóst til hvers er vísað með Stóra-Ísrael. Í sköpunarsögu Biblíunnar er Guð sagður lofa Abraham og afkomendum hans landsvæði frá Níl …