Lögmaðurinn Moein Khazaeli, sem ráðleggur írönskum aðgerðasinnum, segir íbúa ekki munu mega eiga í nokkrum samskiptum við erlenda miðla; ekki veita viðtöl og ekki mega senda þeim myndir, svo dæmi séu tekin. Hafi þeir ekki fengið leyfi áður hjá yfirvöldum muni þeir eiga yfir höfði sér að vera sendir í fangelsi.
Stjórnvöld hafa löngum viðhaft ritskoðun og blaðamenn verið dæmdir á vafasömum forsendum en Khazaeli segir um að ræða töluverða stigmögnun, sem muni færa Íran í átt að Norður-Kóreu.
Bahar Ghandehari, framkvæmdastjóri hjá Center for Human Rights in Iran, segir fyrirhugaða löggjöf munu gera Íran að „svartholi“. Lögin séu tilraun til að skera á tengsl almennings í Íran við umheiminn.
BBC greindi frá.