Stjórnarmyndunarviðræður hafa staðið yfir í margar vikur í Danmörku, eða frá kosningunum 24. mars.
Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, og leiðtogi stjórnmálaflokksins Moderaterne, hitti Mette Fredriksen, forsætisráðherra landsins í dag. Fundurinn kom mörgum á óvart en þau höfðu ekki fundað í tólf daga. Bundu því margir vonir við það að samkomulag hefði náðst.
Fundurinn var þó öllu tíðindaminni en á horfðist. Lökke sagði að hann hefði einungis hitt Fredriksen til þess að tryggja að svokallað velferðarsamkomulag væri enn í gildi.
Hann var fullvissaður um það og sagði eftir fundinn að nú gætu stjórnarmyndunarviðræður haldið áfram.