Hæstiréttur hafnaði í dag kröfu landeigenda þriggja jarða í sveitarfélaginu Vogum um að ákvörðun um eignarnám á landi þeirra yrði felld úr gildi. Með þessu staðfestir Hæstiréttur í dag dóm Landsréttar og Héraðsdóms Reykjaness.
Íslenska ríkið fékk heimild til eignarnáms á svæðinu árið 2024. Þar hyggst Landsnet leggja Suðurnesjalínu 2 í lofti að hluta um jarðirnar. Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets segir línunni ætlað að stuðla að auknu raforkuöryggi og flutningsgetu á Reykjanesskaga.
„Suðurnesjalína 2 er nauðsynleg þegar kemur að orkuöryggi á Suðurnesjum. En það er líka innviðauppbygging þar og það er eftirspurn eftir raforku á Reykjanesi og mikið að gerast þar þannig að það er í raun og veru beðið eftir þessari línu.“
Ragna kveðst ánægð með niðurstöðu Hæstaréttar sem staðfestir lögmæti eignanámsins. Hún segir ferlið þó hafa tekið of langan tíma og mikilvægt sé að koma í veg fyrir að tafir sem þessar endurtaki sig.
„Það er alveg ljóst að þetta er eitthvað sem við þurfum sem samfélag að horfa á. Ætlum við virkilega að nota áratugi í að ákveða hvort við ætlum að láta verða af framkvæmdum eða ekki? En við erum eðlilega mjög ánægð með þessa niðurstöðu.“
Að sögn Rögnu skýrist töfin á Suðurnesjalínu 2 af ýmsum þáttum. Leyfisveitingarferlið hafi tekið langan tíma og önnur atriði tengd því, þar á meðal samningar við landeigendur og umhverfismat. Ragna segir framkvæmdir eiga eftir að taka um fjóra mánuði þegar hægt verður að hefjast handa.
„Við erum að vonast til þess að geta lokið þessu með haustinu og áður en veturinn byrjar. Það er eiginlega algjörlega nauðsynlegt að við komumst í það.“