Lítið kæmi á óvart ef hæsti hitinn það sem af er ári mældist á Austfjörðum um helgina.
Þetta segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, og bætir við að laugardagurinn verði líklega ívið betri en sunnudagurinn.
Rigning eftir helgi
„Það stefnir í tvo mjög hlýja daga um helgina. Það kæmi lítið á óvart ef hitinn kæmist í 25 stig fyrir austan á laugardaginn og sunnudagurinn er svipaður, þó kannski gráðu kaldari,“ segir Birgir.
Skjótt skipast veður í lofti en á þriðjudaginn og miðvikudaginn kemur má búast við rigningu víða um landið, þar með talið á Austfjörðum.
Enn verður þó hlýtt í veðri þó að hitastigið fari niður fyrir 20 gráðurnar.