Fjölmennt lið björgunarsveita leitaði ferðamanns í um fimm eftir að hann lenti í hremmingum í Sveinsgili norður af Torfajökli.
Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir manninn hafa hringt í Neyðarlínuna um klukkan hálf níu í kvöld. Hún segir leit hafa staðið yfir á því svæði þar sem staðsetningartækni Neyðarlínunnar staðsetti manninn.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að ferja fólk með fjarskiptabúnað úr Reykjavík á leitarsvæðið þar sem samband lögreglu við björgunarsveitir var slitrótt.
Bryndís segir að áhöfn þyrlunnar hafi séð hvar maðurinn veifaði vasaljósi þegar þyrlan flaug yfir leitarsvæðið. Maðurinn var tekinn um borð í þyrluna og fluttur til Reykjavíkur. Hann sakaði ekki en var blautur og kaldur.
Björgunarsveitarmenn úr hálendisvakt, Dagrenningu á Hvolsvelli, Flugbjörgunarsveitinni Hellu, Kyndli í Mosfellsbæ og Stjörnunni Skaftártungu tóku þátt í leitinni.
Fréttin var uppfærð eftir að maðurinn fannst.