Fjölskyldan greinir frá þessu í tilkynningu. Faðir Presley er athafnamaðurinn Rande Gerber og systir hans leikkonan Kaia Gerber. Þau biðja um frið á erfiðum tímum.
Presley hóf fyrirsætuferil sinn þegar hann var fimmtán ára og fetaði þannig í fótspor móður sinnar. Hann hefur um árabil barist við fíknidjöfla og opnaði sig árið 2024 um ópíóíðafíkn og sagði frá stundu þegar hann var nær dauða en lífi eftir ofskammt af fentanýli.