Skúli Tómas Gunnlaugsson hjartalæknir snýr aftur til starfa á Landspítalanum á næstunni, samkvæmt upplýsingum frá spítalanum. Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn vegna andláts konu sem lést í umönnun hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2019.
Málinu var vísað frá í Héraðsdómi Reykjaness í vikunni á þeim grundvelli að honum hefði þegar verið refsað með sviptingu læknaleyfis. Ekki liggur fyrir hvort ákæruvaldið áfrýi úrskurðinum til Landsréttar.
Skúli Tómas var sviptur lækningaleyfi sínu 2021 en hann endurheimti það 2024. Þá starfaði hann á Landspítalanum.
Í svörum frá Landspítala segir að ef málinu verði áfrýjað og úr því komi önnur niðurstaða á æðra dómstigi verði brugðist við því. Annars sé engin ástæða til annars en að Skúli Tómas hefji aftur störf á spítalanum.