Erla Erlendsdóttir, skólastjóri Ölduselsskóla í Breiðholti, kveðst bjartsýn á að mótvægisaðgerðum vegna myglu sem áður hafði greinst í skólabyggingunni ljúki fyrir áramót.
Brýnast sé að koma í veg fyrir þakleka. Í seinustu viku kom fram tillaga af hálfu Reykjavíkurborgar um að fresta framkvæmdum fram á næsta fjárhagsár. Horfið hefur verið frá þeirri hugmynd eftir samtal við skólastjórnendur sem gátu undirstrikað mikilvægi þess að ekki yrði gert hlé á framkvæmdum.
Erla segir umfangsmiklar framkvæmdir hafa staðið yfir í skólanum í eitt og hálft ár og hluti húsnæðis skólans sé enn lokaður. Til að mæta því hefur borgin útvegað þrettán færanlegar kennslustofur þar sem kennsla 1. til 4. bekkjar fer fram.