Ari Orrason, 26 ára, var kjörinn formaður Ungra vinstri grænna á landsfundi hreyfingarinnar laugardaginn 17. október. Hann tekur við af Illuga Gunnarssyni sem hafði gegnt formennsku frá því í febrúar.
Í kjölfarið fóru skjáskot af því sem virtust vera gróf ummæli Ara á Twitter, nú X, á kreik á samfélagsmiðlum. Þar koma meðal annars fram hvatningar til sjálfsvígs og svívirðingar í garð þeirra sem hann átti í orðaskiptum við.
Nútíminn hafði samband við Ara til að bera þau undir hann. Ari staðfestir að þau séu hans og segist sjá eftir þeim. Hann bendir jafnframt á að hann hafi þegar gagnrýnt eigin framkomu opinberlega í grein árið 2024.
Mynd af snöru fylgdi skilaboðunum
Skjáskotunum var meðal annars dreift á aðganginum @ArniMagnusarafi þann 18. október, þar sem ummæli nýkjörins formanns voru harðlega gagnrýnd.
Formaður Ungra Vinstri Grænna hefur víst verið helvíti duglegur í að segja fólki að drepa sig á hrottalegan hátt. Ætti hann ekki að fylgja sínum eigin flokksformanni og vera gasaður í slag við lögreglu? https://t.co/QgGnBd8JF5
— Árni Magnússon Aficionado🇮🇸 🇬🇧 (@ArniMagnusarafi) October 18, 2026
Í samsettu myndinni eru fimm brot merkt notandanafninu @Ari_Orrason. Í einu þeirra stendur „dreptu þig NÚNA“ og í öðru „Í fyrsta lagi sagði ég þér að drepa þig“.
Í þriðja brotinu fylgir mynd af snöru orðunum:
„Ekki spurning, gjörðu svo vel þessi er fyrir þig“.
Við könnun Nútímans fannst eldri birting sömu myndar frá maí 2024. Einnig fannst stærra skjáskot af einni færslunni ásamt beinni slóð á hana í birtingu frá nóvember 2023. Þeirri færslu hefur verið eytt.


„Var talsvert yngri og reiðari“
Nútíminn spurði Ara hvort ummælin væru hans, hvort hann teldi rétt að hafa skrifað þau, í hvaða samhengi þau hefðu verið sett fram og hvort hann vildi segja eitthvað um þau.
Ari staðfesti að hafa skrifað ummælin. Hann segir þau vera frá því fyrir mörgum árum, að hans minni í kringum 2019–2020, og hafa fallið í rifrildum við nasista á Twitter.
„Var talsvert yngri og reiðari. Sé eftir þeim í dag, þetta eru ljót comment,“ segir Ari.
Hann benti jafnframt á grein sem hann hafði sjálfur skrifað um þessa framkomu og sagðist þar hafa fordæmt eigin ummæli.
Gagnrýndi eigin framkomu árið 2024
Grein Ara birtist á Vísi 31. október 2024 undir yfirskriftinni „Misrétti, vonleysi og baráttan við að halda í bjartsýnina“. Þar fjallaði hann meðal annars um skítkast, niðurrif og hvatningar til sjálfsvígs á samfélagsmiðlum og viðurkenndi eigin þátt í slíkri hegðun þegar hann var yngri.
Hann lýsti því hversu auðvelt væri að réttlæta fyrir sjálfum sér dónaskap og andstyggð gagnvart einhverjum sem maður sæi aðeins sem „andlitslausan nasista á netinu“. Hann tók svo skýrt fram að sú réttlæting væri blekking.
„En þetta er samt ekki í lagi. Það er ekkert eðlilegt við það hvernig sumir leyfa sér að tala um aðra á netinu, hvernig við leyfum okkur að niðurlægja og lítillækka aðra bakvið skjöld skjásins.“
Í greininni tengdi Ari framkomuna við reiði og vonleysi. Hann hvatti ungt fólk til að láta væntumþykju og virðingu ráða samskiptum sínum og sagði að þótt samfélagsleg vandamál yrðu ekki leyst með einstaklingsgjörðum gæti fólk ákveðið að gefast ekki upp og koma vel fram við aðra.
„Verum góð hvort við annað og höldum í vonina.“