Frá þessu greinir Veðurstofa Íslands í tilkynningu. Upp úr kl. 21 í gærkvöldi, 23. maí, hófst jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg, tæplega 10 km vestur af Reykjanestá.
Yfir 120 jarðskjálftar hafa mælst síðan þá og var sá stærsti M3.5 að stærð kl. 05.06 nú í morgun.
Veðurstofunni hafa ekki borist tilkynningar um að skjálftarnir hafi fundist í byggð.
Ekki mælist órói á svæðinu og sýna GNSS-stöðvar á svæðinu ekki markverðar breytingar í bakgrunni.
Jarðskjálftahrinur eru algengar á flekaskilunum og síðast varð svipuð hrina á þessu svæði í febrúar og apríl á þessu ári og vörðu þær frá nokkrum klukkustundum upp í nokkra daga.