„Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ - Vísir
⚠️ Eldri en 6 mánuðir
„Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ - Vísir
📅 2026-04-27 23:10:43👁️ 7 lesið
Rekstur A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæður um rúmlega fimm milljarða króna á síðasta ári. Í nóvember var gert ráð fyrir fjögur hundruð milljóna afgangi. Matsbreyting á eignum Félagsbústaða varð til þess að B-hlutinn var rekinn með ríflegum afgangi.Árið 2024 skilaði A-hlutinn 4,7 milljarða afgangi svo um er að ræða um tíu milljarða neikvæðan viðsnúning. Í tilkynningu frá borginni segir meðal annars að há verðbólga, óvissa á atvinnumarkaði og hækkun lífeyrisskuldbindinga skýri helst neikvæða niðurstöðu.
Fyrrverandi borgarstjóri svekktur
Einar Þorsteinsson segir niðurstöðuna gríðarleg vonbrigði og að núverandi meirihluti eyði um efni fram.„Þegar ég skilaði af mér borginni eftir mína borgarstjóratíð voru fimm milljarðar í afgang, það er heimamundurinn sem þessi meirihluti fékk,“ segir Einar og bætir því við að meirihlutinn sýni ekki aðhald og virðist ekki hafa neinn áhuga á rekstri.„Ég held að enginn hefði geta gert sér það í hugarlund að þau myndu gjörsamlega klúðra fjármálunum á einu ári,“ segir hann jafnframt.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir líkt og Einar að fjárhagur borgarinnar sé áhyggjuefni. Hún segir það sjaldgæft að það gerist eins og nú að útsvarstekjur hafi verið ofmetnar.„En svo voru auðvitað bara útgjöld umfram heimildir,“ segir Hildur og tekur sem dæmi að laun hafi hækkað um rúmlega átján prósent milli ára sem séu verulegar hækkanir og langt umfram kjarasamningsbundnar hækkanir.Þá segir hún að ráðast þurfi að vandanum og leysa þetta enda sé að hennar mati ljóst að eitthvað sé að í rekstrinum. Ekki sé hægt að selja af sér spjarirnar til eilífðarnóns.
Betra ár á undan
Þetta er fyrsta rekstrarár Heiðu Bjargar Hilmisdóttur sem borgarstjóra en hún sagði í kvöldfréttum Sýnar að það hefði verið skemmtilegra ef hennar meirihluti hefði hitt á árið á undan.„Þetta væri auðvitað skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu, árinu á undan þar sem lífeyrisskuldbindingin var jákvæð þannig að það kom tekjufærsla en ekki gjaldfærsla eins og núna og hún er auðvitað ríflega tíu milljarðar,“ segir Heiða.Hún segir þetta vera reiknistærð sem tryggingastærðfræðingar reikni út frá launahækkunum, verðbólgu og ávöxtun á markaði svo eitthvað sé nefnt. Hún vilji einnig vekja athygli á því að áætlanir séu að standast hvað varðar rekstur grunnþjónustu.„Við höfum bætt í hvað varðar börn og barnafjölskyldur og erum bara mjög stollt af því. Það sést að það hafi verið vel áætlað fyrir því og sparað á móti,“ segir Heiða einnig. Það sé alls ekki þannig að laun hafi hækkað um átján prósent heldur séu lífeyrisskuldbindingareikningarnir komnir inn.
Lykiltölur í rétta átt
Er eitthvað sem má segja að hefði mátt fara betur þegar horft er til baka ef lífeyrisskuldbindingar eru teknar út fyrir sviga? Heiða segir að í fyrsta lagi þurfi að skoða það hvort hægt sé að spá betur fyrir um þessar upphæðir og að sú vinna sé farin af stað. Svo sé líka spurning hvers vegna þetta sé inni í rekstrarreikningum sveitarfélaga, þetta sé ekki í rekstrarreikningum hjá neinum öðrum.„Þetta kannski gefur ekki góða mynd og ég sé strax að það eru komnar svona villandi tölur í umferð sem er auðvitað ekki gott af því að þetta er skuldbinding. Þetta er ekki fjármagn sem hefur farið út og handbært fé og allar lykiltölur í rekstrinum eru að þróast í rétta átt,“ segir Heiða.
Enn að jafna sig eftir Covid
Það er kannski hægt að slá því föstu að þú verðir ekki borgarstjóri eftir næstu kosningar en hefðir þú viljað skila af þér betra búi? „Við erum auðvitað að koma út úr mjög erfiðum tíma og erum ennþá að ná okkur á strik eftir Covid,“ segir Heiða og bætir við að þau hafi ætlað að hafa „allt á grænu“ núna en það hafi ekki tekist að ná rekstrarniðurstöðunni.Þau séu að ná eiginlega öllum mælikvörðum í jákvæða átt, séu komin með veltufé frá rekstri í 6,9 prósent og að markmiðið sé 7,5 prósent. „Við erum búin að vera að fjárfesta gríðarlega og ég er mjög stolt af rekstri borgarinnar,“ segir Heiða og hún sé sérstaklega stolt af því að fyrsta verk þeirra hafi verið að hækka laun kennara. En getur maður gengið stoltur frá tíu milljarða viðsnúningi? „Þetta er auðvitað reiknuð stærð sem kemur þá inn sem skuldbinding og svo sjáum við bara hvort að ávöxtunin verður betri á næsta ári og þá mögulega verður það jákvætt aftur,“ segir Heiða.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherr, hyggst í nóvember leggja fram frumvarp til breytinga á lögreglulögum með það fyrir stafni að fækka ...
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um nýafstaðnar kosningar í Brasilíu, Serbíu og Ísrael. Þá ræddu þau ei...
Barbara Barrie á að baki langan feril í sjónvarpi, kvikmyndum og á sviði. Hún var meðal annars tilnefnd til Óskarsverðlauna árið 1979 fyrir hlutverk s...
Hirti J. Guðmundssyni, sagnfræðingi og alþjóðastjórnmálafræðingi, hefur verið sagt upp störfum á Hagstofunni.Hjörtur hefur verið einn mest áberandi pi...
Stólpagrín hefur verið gert að Vladímír Pútín Rússlandsforseta eftir að mynd birtist af honum með Daniel Chapo, forseta Mósambík.Breska blaðið Metro g...
„Á árunum 1972-1999 starfaði ég sem skrifstofustjóri hjá samtökum útgerðarmanna, sem voru til húsa á II. hæð í Hafnarhvoli v/Tryggvagötu, Reykjavík. H...
Íslendingur á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir að hann veittist að manni í leigubifreið fyrir utan Kringluna um miðj...
Hirti J. Guðmundssyni, einum mest áberandi andstæðingi ESB aðildar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í sumar, hefur verið sagt upp störfum á Hags...
Spænsku konungshjónin, Filippus og Letizia, heimsækja í allan dag það fólk sem liggur á háskólasjúkrahúsinu í borginni Toledo eftir að hraðlest var ek...
Nýtt lyf bætir horfur hjá konum með útbreitt brjóstakrabbamein Fréttin29. október 2026Heilbrigðismál, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skr...
Spænska skipafélagið Boluda Shipping og Samskip undirrituðu kaupsamning á Samskipum og dótturfélögum þess í gær. Hjónin Ólafur Ólafsson og Ingibjörg K...
Fjórðungsþing Vestfirðinga skorar á innviðaráðherra að endurskoða skilyrði þess að Breiðafjarðarferjan Baldur sé nýtt sem varaskip fyrir Vestmannaeyja...
Dróninn var þotuknúinn en þeir sjálfsprengidrónar hafa gert Úkraínumönnum erfitt að undanförnu, þar sem þeir fljúga mun hraðar en eldri drónar Rússa o...
Tónlistarmaðurinn Stevie Wonder reynir nú að bera fyrrverandi kærustu út húsi í hans eigu. Hún hefur búið þar leigulaust í fjörutíu ár.Miðillinn TMZ g...
Mannlíf greindi fyrst frá málinu. Á vef héraðsdómstólanna má sjá að málið er skráð sem skuldamál og verður tekið fyrir að morgni dags mánudaginn 2. n...
Vilhelm Jónsson skrifar: Hvað gerir fjölskylda þegar skuldirnar vaxa, þakið lekur og nauðsynlegar viðgerðir bíða?Hún forgangsraðar.Hvað gera íslensk s...
„Afstaða bænda var snar þáttur í þeirri ákvörðun, sem fólst í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, að láta Ísland standa án pólitískrar baktryggingar...
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, vill að trúarleiðtogar á borð við Muhammad Taqi Usmani verði stöðvaðir á landamærunum með sam...
Eini framleiðandi hamsatólgar fær framhaldslíf því fyrirtækið Stóruvellir hefur verið selt. Nýir eigendur ætla að halda framleiðslunni áfram en í sept...
Breytingin þýðir að Icelandair hyggst nýta stórar farþegaþotur í áætlunarflugi sínu til Ilulissat í stað hinna 37-sæta Dash 8 Q200. „Já, við gerum ráð...
Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu er greint frá samantekt stjórnenda bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu spítalans en hún bendir til þess að ...
Eldur logar í þremur olíuskipum á Hormússundi eftir að þau sigldu á tundurdufl samkvæmt tilkynningu íranska byltingarvarðarins. Skipin hafi verið á ól...
Hjónin Veigar Margeirsson og Sigríður Ragna Jónasdóttir ræddu sögu sína í Bítinu á Bylgjunni. Tilefnið er fjörutíu ára Nýrnafélagsins. Sigríður útskýr...
Kaffivagninn hefur staðið við Grandagarð frá árinu 1960 en kaffihúsið var upphaflega stofnað árið 1935 en þá á öðrum stað. Framkvæmdir hófust 4. apríl...
Jólahlaðborðin hefjast 13. nóvember og daginn eftir verður fyrsti jólabrönsinn borinn fram. Að sögn Daníels Friðrikssonar, eiganda og framkvæmdastjóra...
Þeir nemendur sem vilja stunda grunnám í alþjóðlegu námi í menntunarfræði og grunnám á hugvísindasviði þurfa að greiða minnst eða 1,450 milljónir krón...
Þeim dómi áfrýjaði forsetinn fyrrverandi en saksóknarar áfrýjuðu honum einnig og vildu að Yoon yrði dæmdur til dauða en ekki í lífstíðarfangelsi. Sú á...
Ekkert sæti fyrir Evrópu í friðarviðræðum um Úkraínu – Kreml Fréttin29. október 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Yury Ushakov. Evrópskum þjóð...
Breska ríkisútvarpið (BBC) greinir frá endalokum rannsóknar á andláti Hayden Panettiere sem lést á heimili sínu í Greenville í Suður-Karólínu þann 16....
Hlutabréf Google-móðurfélagsins hrynja um 10 prósent – olíuverð áfram í hæstu hæðum Fréttin29. október 2026Erlent, MarkaðurLeave a Comment Órói hefur ...
Íslenskt nei og ekkert ESB-Kanada Fréttin29. október 2026Erlent, Evrópusambandið, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Ekkert v...
Sambandið í svefnherberginu á það til að verða fyrir skakkaföllum þegar hasarinn í lífinu tekur öll völd. Þegar kynlífstól koma við sögu þá getur ýmis...
Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að Vigdísarverðlaunin séu árlega veitt einstaklingi sem brotið hafi blað með störfum sínum í þágu tungumála, m...
Atli Bollason lætur nýjan meirihluta Reykjavíkurborgar fá það óþvegið í harðorðum pistli þar sem hann líkir vinnubrögðum borgarstjórnar við aðgerðir a...
Vance hefur samband við Íran – Trump neitar að friðarviðræður séu hafnar að nýju Fréttin29. október 2026ErlentLeave a Comment JD Vance, varaforseti Ba...
Eftir sjö farsæl ár sem fararstjórar Úrvals Útsýnar í Madonna hafa Dinna og Helgi ákveðið að halda á vit nýrra ævintýra. Við keflinu taka Dóra, leikko...
Trump og Pútín hækka íslensk fasteignalán Vísitala neysluverðs rís um 0,44 prósent í október, aðallega vegna hærra eldsneytisverðs. Stríðsreks...
Ljósmyndari fréttastofunnar Anton Brink skellti sér á vettvang á þriðjudag þegar verkið við að draga brúna yfir ána hófst formlega. Sjá má á myndefnin...
Hættan sem fylgir hraðakstri ungmenna og ungir vegfarendur verða í brennidepli á alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa 15. nóvember. H...
Verðbólgan stendur í stað Vísitala neysluverðs hækkar um 0,44 prósent á milli mánaða en verðbólga á tólf mánaða grundvelli breytist ekki. Verð...
Þrír karlmenn hafa verið dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu í Reykjavík í ágúst 2023. Einn þeirra átti að ...
Verðbólgan var 5,9 prósent í október. Það er jafnmikil verðbólga og í síðasta mánuði.Eldsneytisverð hefur hækkað áfram og það veldur meiri verðbólgu e...
Háskóli Íslands hefur birt yfirlit yfir skólagjöld sem erlendir nemendur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins verða að greiða til að stunda nám ...
Arna útskýrir að peptíð séu stuttar amínósýrukeðjur sem virka svona eins og boðefni í líkamanum sem geta svo haft alls konar áhrif og afleiðingar. „Vi...
Frumvarpið má finna í samráðsgátt stjórnvalda en ráðherra leggur til að áfram verði notast við starfsheitin vararíkissaksóknara og varahéraðssaksóknar...
Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá, gagnrýnir utanríkisráðuneytið harðlega í færslu á X. Hann segir „firru“ hafa gripið um sig í ráð...
Dómur var kveðinn upp yfir þremur karlmönnum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær vegna íkveikju í Tesla-bíl lögreglukonu. Allir voru þeir sakfelldir. Tveir...