Skemmti­lega sögu­hornið: Hneykslan­legt að borða með gaffli frekar en puttunum - Vísir

Skemmti­lega sögu­hornið: Hneykslan­legt að borða með gaffli frekar en puttunum - Vísir

Skemmti­lega sögu­hornið: Hneykslan­legt að borða með gaffli frekar en puttunum - Vísir

Almennt reynum við síðan að kenna börnunum helstu borðsiði þegar þau verða eldri og þegar við erum orðin fullorðin, einfaldlega gerum við ráð fyrir að almennir siðir og venjur séu virt. Til dæmis að borða ekki með höndunum, ropa ekki við matarborðið eða að halda rétt á hnífapörum.

Íslendingar hafa líka átt sérfræðinga til að kenna okkur sérstaklega. Árið 1947 kom út bókin Matur og drykkur þar sem Helga Sigurðardóttir fór yfir helstu atriði. Í dag eigum við líka matar- og lífsknúnsterinn Albert Eiríksson að, sem nánast virkar á okkur sem eðalborinn, svo vel er hann að sér í öllu því sem réttast er að gera við matarborðið.

En hvenær fór það að verða dónalegt að ropa við matarborðið eða sleikja á sér puttana? 

Að borða með fingrunum

Við skulum byrja á því að hverfa aftur til miðalda. Því þótt það hafi löngum tíðkast að borða með fingrunum er mikilvægt að gera greinarmun á því að borða með fingrunum eða hafa borðsiði: Miðaldafólk hafði sína borðsiði, þeir voru bara allt aðrir en okkar!

Við veisluborð evrópska aðalsins á miðöldum gegndi brauð lykilhlutverki og þykkar brauðsneiðar, svokallaðar trenchers, gátu jafnvel þjónað sem eins konar diskar.

Kjöt kom á sameiginlegum fötum og fólk tók sér bita þaðan.

Fullkomlega eðlilegt var að taka mat með fingrunum og borða hann þannig. Sleikja síðan fingur eins og við átti.

Hnífurinn var kominn til sögunnar. Enda ævafornt verkfæri og ekki óalgengt á miðöldum að menn bæru á sér sinn eiginn hníf. Við borðið var þessi hnífur notaður til að skera kjöt og stundum til að færa bita að munninum.

Skeiðin kom líka nokkuð snemma. Enda nauðsynleg fyrir súpur, grauta og annan fljótandi mat.

En þótt fólk hafi borðað með fingrunum var ekki sama hvernig fingurnir voru settir upp í munninn. Í siðabókum miðalda og endurreisnartímans er farið yfir reglur um hvernig maður á að borða með fingrunum. Fáguð hegðun gat meðal annars falist í því að nota aðeins ákveðna fingur fremur en að grípa mat með allri hendinni.

Þá var það sérstaklega tiltekið að sleikja fingur hóflega. Þetta þýddi að það að sleikja þá óhóflega eða þurra óhreina fingur á fötunum þótti ósiður.

Ekki mátti setja kjötbita sem búið var að bíta í aftur á sameiginlega fatið. Þá taldist það dónalegt að róta til í sameiginlega fatinu til að leita að besta bitanum.

Sumt myndu flestir reyndar telja til góðra siða enn í dag. Til dæmis að setja ekki nagaðan bita aftur á sameiginlegt fat. Að borða með fingrunum er þó löngu liðin tíð og hvað þá að bera matinn upp að munni með hníf.

Oft fáum við góða innsýn í borðsiði fyrri alda í gegnum góðar bíómyndir eða sjónvarpsseríur. Til dæmis mátti sjá í Game of Thrones að þótt skeiðin hafi komið snemma og hnífar að jafnaði notaðir, borðaði fólk mikið með fingrunum.

Gaffallinn sem hneykslaði Evrópu

Það verður að segjast að sagan um gaffalinn er dásamleg saga út af fyrir sig. Enda þótti hann óþarfur lengi: Guð skapaði fólk með fingur og til hvers þurfti þá gaffal?

Gaffallinn varð að hefðbundnu áhaldi mun síðar en hnífur og skeið en hann var þó ekki ný uppfinning. Gaffalík áhöld höfðu verið notuð frá fornöld og í Býsans var nokkuð þekkt meðal yfirstéttarinnar að borða með gaffalíku áhaldi í upphafi elleftu aldar.

Evrópubúar þekktu þó varla gaffalinn.

Ekki fyrr en til Feneyja á Ítalíu kemur býsönsk aðalskona, María Argyropoulina, sem giftist Giovanni Orseoli hertogasyni um 1004–1005.

María gerði eitthvað stórfurðulegt við matarborðið.

Því hún vildi ekki taka matinn upp með fingrunum!

Þjónarnir hennar skáru matinn í litla bita og hún tók bitana upp með litlum tvíarma gullgaffli og bar að munni.

Áratugum síðar notaði munkurinn og síðar kardínálinn Peter Damian söguna um Maríu og gullgaffalinn sem dæmi um óhóf og hégóma. Damian gagnrýndi reyndar ekki aðeins gaffalnotkun Maríu heldur líka ýmsan annan munað henni tengdan.

María lést ung úr plágu og Damian túlkaði örlög hennar sem refsingu fyrir hégómann.

Guð skapaði menn með fingur og til hvers að nota þá gaffal spurðu sumir? Enda tók það gaffalinn nokkrar aldir að verða að almennu áhaldi við matarborði. Lengst af borðaði fólk með fingrunum og notaði hnífinn sem það bar á sér til ýmissa verka.

Á þrettándu öld voru borðgafflar enn sjaldgæfir í Vestur-Evrópu. Á fjórtándu öld fjölgaði þeim, meðal annars voru litlir gafflar notaðir fyrir ávexti og sætindi.

Ítalir voru framarlega í þróuninni og það má segja að gaffallinn hafi breiðst út frá Ítalíu til annarra evrópskra hirða og yfirstétta á 16. og 17. öld.

Enn var þó gert grín.

Árið 1611 skrifaði til dæmis Thomas Coryate um þá furðulegu ítölsku venju að nota gaffal þegar kjöt var borðað.

Coryate fannst þetta þó svo sniðug leið að hann tók upp á því sjálfur við heimkomu til Englands að borða með gaffli.

Þar var hlegið að honum fyrir vikið.

En hvað með hnífinn?

Hvenær ætli hann hafi breyst úr því að vera hnífur sem menn notuðu til ýmissa verka, þar á meðal að borða, yfir í að verða borðhnífur?

Sérstakir borðhnífar voru farnir að verða til fyrir 1600 en stóra breytingin kemur á sautjándu öld. Því árið 1672 mælti franski siðasérfræðingurinn Antoine de Courtin með því að hver gestur hefði sinn disk, hníf, gaffal og skeið.

En ekki nóg með það: Hnífurinn missti líka oddinn.

Sagan segir að Richelieu kardínáli hafi á sautjándu öld látið rúnna odda borðhnífa sinna, meðal annars vegna þess að honum mislíkaði sá siður gesta að nota hnífsoddinn til að hreinsa tennurnar.

Árið 1669 gekk Lúðvík XIV Frakklandskonungur síðan lengra og bannaði oddhvassa hnífa, meðal annars við matarborðið.

En takið eftir öðru:

Við erum enn aðeins að tala um áhöld efnameira fólksins. Enn tíðkaðist að aðrir þjóðfélagshópar borðuðu með fingrunum og notuðu sína eigin hnífa.

Öldum saman hafa sérfræðingar leiðbeint fólki um hvernig ber að haga sér eða bera við matarborðið. Íslendingar fengu sínar fyrstu leiðbeiningar á íslensku í bókinni Matur og Drykkur eftir Maríu Sigurðardóttur en hún kom út árið 1947. Vísir og Fréttablaðið rifjuðu upp helstu reglur Maríu haustið 2011.

Ropaðu sómasamlega

Smátt og smátt gerðist það þó að notkun á hnífapörum færðist niður samfélagsstigann. Á átjándu og nítjándu öld fóru hnífapör því að komast inn á heimili almennings.

Sem þó hafði lengi notað skeiðar og hnífa.

Nýjungin fólst hins vegar í því að við matarborðið ætti hver einstaklingur samstætt persónulegt matarsett: hníf, gaffal og skeið þegar hún átti við.

Það sem hjálpaði til við útbreiðsluna var að framleiðsla hnífapara varð meiri með ódýrari málmum. Þá hraðaði iðnbyltingin ferlinu enn frekar.

En næst er það líkaminn.

Því það er ekki nóg að kunna að borða með réttum áhöldum. Miklu skipti líka hvernig ætti að haga sér.

Ekki bara við matarborðið heldur almennt:

Hvernig á að snýta sér?

Hrækja, sitja við borð, borða?

Hvað á maður síðan að gera ef maður þarf að ropa?

Ein þekktasta heimildin um leiðbeiningar í Evrópu var gefin út árið 1530 eftir Ersasmus frá Rotterdam. Í bókinni hans, De cvilitate morum puerilium, eru leiðbeiningar um góða hegðun barna.

Sem og þessi praktísku atriði sem nefnd eru hér að ofan.

Ersasmus skýrði ropið út þannig að ef við þyrftum að ropa ættum við ekki að reyna að halda því inni heldur leyfa ropinu að koma, en snúa okkur undan og ropa á eins lítið áberandi hátt og hægt væri.

Það er ekki óalgeng sjón að sjá fólk með símann við matarborðið en löngum þótti það dónalegt að lesa við matarborðið. Er skrollið í símanum ígildi lesturs í dag? Eða er í góðu lagi að vera í símanum við matarborðið?Vísir/Getty

Hvað með símann?

Á nítjándu öld varð síðan sprenging í útgáfu siðabóka. Enda á tímum Viktoríu drottningar, þegar millistéttin stækkaði verulega og miklu skipti að fólk sem var að færast frá lægstu stéttum upp í millistéttina lærði á reglurnar sem áður höfðu einkum einkennt yfirstéttina.

Ekki var nóg að vita að allir ættu að borða með gaffli. Nú þurfti að vita hvernig halda ætti á gafflinum.

Hvar og hvernig serívettan ætti að vera.

Hvernig maður á að sitja við borðið.

Hvaða mat má snerta með fingrunum.

Hvernig á að nota hnífinn.

Hvað má segja við borðið?

Og auðvitað hvað má alls ekki gera.

Borðsiðirnir flytjast auðvitað til Íslands líka. Og loks árið 1947 fær íslenska þjóðin sína eigin leiðbeiningarbók sem útskýrir fyrir fólki á íslensku hvernig það ætti að sitja, tyggja, halda á áhöldum og svo framvegis.

Í október 2011 rifjuðu Vísir og Fréttablaðið upp það helsta úr leiðbeiningum Helgu. En leiðbeiningarnar hennar voru þá helst þessar:

  • Komið ætíð hrein og snyrtilega klædd til máltíða. Mætið stundvíslega.
  • Sitjið rétt, hæfilega langt frá borðinu og hafið fæturna við stólinn. Leggið handleggina ekki á borðið. Takið ekki of mikið í einu af fatinu og ekki eingöngu það sem ykkur þykir gott eða bestu bitana. Skiljið ekki eftir.
  • Jafnvel þó að yður falli ekki sá réttur, sem fram er borinn, eða þér þekkið hann ekki, þá takið af honum og borðið. Það er ekki háttvísi að segja, að yður langi ekki í þetta.
  • Matist eins hljóðlega og hægt er og tyggið með lokuðum munni. Sötrið ekki.
  • Súpan er borðuð úr hlið skeiðarinnar, en grauturinn úr henni beinni. Ekki má blása á matinn til þess að kæla hann og ekki taka diskinn upp með hendinni. Haldið ekki of neðarlega á skeið, hníf eða gaffli.
  • Látið hnífinn aldrei upp í yður, borðið með gafflinum.
  • Talið ekki með mat upp í yður. Teygið yður ekki yfir borðið eða sessunaut yðar, biðjið heldur um að rétta yður það, sem þér óskið eftir.
  • Sérhver verður að gefa því gætur, að sessunaut hans skorti ekkert, og sérstaka athygli verður að viðhafa, þegar gestir eru.
  • Það er ekki kurteisi að stanga úr tönnum, þegar aðrir sjá til.
  • Ekki er háttvísi að lesa við borðið.

Auðvitað er skemmtilegt að lesa yfir þennan lista og bera okkur saman við hann miðað við nútímaborðsiði í dag.

Helga hnykkir þarna á því að fólk smjatti ekki þegar það borðar, leifi ekki af diskinum og sýni þá kurteisi að borða alltaf það sem fram er borið.

Í dag er það líka algjör ósiður að setja hnífinn upp í okkur, ólíkt því sem tíðkaðist þegar vasahnífurinn sjálfur var notaður!

Ekki er háttvísi að lesa við borðið.

Þegar Helga gefur út sína bók eru tímarnir auðvitað allt aðrir en nú. Mörg heimili í dag þekkja það þó að það að fólk sé í símanum sínum – skroll þá hér ígildi lesturs – við matarborðið.

Fjölskyldufræðingurinn og félagsráðgjafinn Sunna Ólafsdóttir benti til að mynda á þetta í viðtali við Vísi. Þar sem hún mælir með því að fjölskyldur borði saman eina máltíð á dag. Þar sem síminn er ekki leyfður!

Sjaldan er góð vísa…

Sérfræðingurinn sem við treystum á í dag að sé algjörlega með‘etta á hreinu er þó án efa Albert okkar Eiríksson, en árið 2012 segir Vísir frá því að hann og eiginmaðurinn Bergþór Pálsson óperusöngvari hafi opnað heimilið sitt fyrir námskeið.

Þar sem þeir sýndu fólki hvernig á að haga sér í fínum matarboðum, hvernig eigi að skála og svo framvegis.

Annar lífskúnster sem við treystum öll á að sé með‘etta er Valgerður okkar Matthíasdóttir á Sýn. Fyrir jólin 2017 fékk hún fyrrgreindan Albert og meistarakokkinn Sigurð Hall til að fara yfir allt það helsta sem við þurfum að vita og kunna á jólahlaðborðinu.

Til dæmis eigum við ekki að detta í það. Það er ekki smart.

Ljóst er í það minnsta að þótt borðsiðir hafi breyst og það verulega í aldanna rás, er góð vísa sjaldan of oft kveðin.

Nú síðast á Valentínusardaginn fór Albert yfir það með Reykjavík síðdegis á Bylgjunni hvernig hægt væri að kynda undir rómantíkinni á Valentínusardaginn.

Albert var þar kynntur sem matarbloggari og, sérfræðingur í borðsiðum og royalisti.

Því þótt enginn geri lengur grín að okkur fyrir að borða með gaffli eins og gert var við Thomas Coryate, þurfum við enn að læra hvernig við eigum að haga okkur við matarborðið. Við stingum ekki lengur upp í okkur með vasahnífnum, sleikjum helst ekki fingurna og Erasmus þyrfti sennilega ekki lengur að útskýra fyrir okkur hvernig best sé að ropa sómasamlega.

Í staðinn þurfum við kannski að minna hvert annað á að leggja frá okkur símann.

Áhöldin breytast. 

Reglurnar breytast.

En borðsiðirnir virðast ætla að fylgja okkur áfram. Eða er það ekki?

Helstu heimildir:

The Met: Fork - Italian

Victoria & Albert Museum: N is for Novelty

Victoria & Albert Museum: Inside the Baroque palace

Erasmus The De Civilitate Morum Puerilium Libel us, fræðigrein

California Academy of Science: Knives

Vísir.is

#borða #hneykslanlegt #með #skemmtilega #söguhornið


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262924647d/skemmti-lega-sogu-hornid-hneykslan-legt-ad-borda-med-gaffli-frekar-en-puttunum

📰 Aðrar fréttir

Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
📅 06.11.2026 👁️ 1
Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Stephen Miller starfsmannastjóra Hvíta hússins frá og með mánudeginum. Forsetinn tilkynnti um þetta í færs...
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
Bandarískir miðlar greina frá en konan, sem fer undir nafninu Jane Doe í fjölmiðlum, höfðaði einkamál gegn Cornell og bræðrafélaginu Chi Phi. Málið va...
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
📅 06.11.2026 👁️ 1
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
The US president's promotion of Miller, a loyal partisan firebrand to be his new chief of staff sets up likely clashes with Congress.
Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu
📅 06.11.2026 👁️ 2
Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu
Landhelgisgæslan hefur sett upp ratsjárstöðvar á fjórum stöðum sem eiga að efla eftirlit á hafsvæðum nærri landi og fylgjast með skipaumferð sem gefa ...
Kastaði upp þegar hún heyrði dóminn yfir manninum sem stakk hana 22 sinnum
📅 06.11.2026 👁️ 1
Kastaði upp þegar hún heyrði dóminn yfir manninum sem stakk hana 22 sinnum
Ung móðir í New York kastaði upp af geðshræringu þegar hún heyrði hversu vægan fangelsisdóm maðurinn sem stakk hana 22 sinnum með hnífi hafði hlotið. ...
„Svína­bændur eiga að fara að lögum“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
„Svína­bændur eiga að fara að lögum“ - Vísir
Einar Logi Pétursson hefur birt umdeild myndskeið úr tveimur svínabúum Stjörnugríss þar sem meðal annars mátti sjá dauð svín og með áverka.  Sjá einni...
Skilnaðardeilur fóru fyrir dóm því maðurinn taldi það bersýnilega ósanngjarnt að skipta eignum til helminga
📅 06.11.2026 👁️ 1
Skilnaðardeilur fóru fyrir dóm því maðurinn taldi það bersýnilega ósanngjarnt að skipta eignum til helminga
Það er aldrei skemmtilegt að skilja, sérstaklega þegar deilt er um skiptingu eigna. Að meginreglu er eignum skipt í helminga eftir svokallaðri helming...
Waterford: Child, 6, dies weeks after arson attack on family home
📅 06.11.2026 👁️ 2
Waterford: Child, 6, dies weeks after arson attack on family home
The attack happened last month at the family home on the outskirts of Waterford in the Republic of Ireland.
Snjórinn féll á Dönsku kránni
📅 06.11.2026 👁️ 2
Snjórinn féll á Dönsku kránni
Sala á jólabjór Tuborg hófst í kvöld, sem er orðinn hluti af jólaundirbúningi margra. J-dagurinn, sem er stytting á julebryg dag, eða „jólabjórsdagur“...
Meghan's father Thomas Markle appears in court over child sex abuse material
📅 06.11.2026 👁️ 2
Meghan's father Thomas Markle appears in court over child sex abuse material
The 82-year-old was arrested in Florida after the FBI searched two Los Angeles-area storage units he rented.
Fölsuð gögn hafi verið lögð fram - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Fölsuð gögn hafi verið lögð fram - Vísir
Garpur Elísabetarson og dóttir hans báru bæði vitni fyrr í vikunni þar sem þau greindu frá meintu umsáturseinelti af hálfu Írisar Helgu. Sögðu þau frá...
Hræðsla valdi lækkun á hlutabréfum
📅 06.11.2026 👁️ 4
Hræðsla valdi lækkun á hlutabréfum
Snorri Jakobsson hagfræðingur segir að hræðsla við hertar reglugerðir gagnvart gagnaverum og gervigreindarfyrirtækjum valdi fallinu sem varð á gengi b...
Björn Leví svarar fyrir sig og hjólar í þingmennina: „Þetta eru gersamlega vanhæfir einstaklingar“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Björn Leví svarar fyrir sig og hjólar í þingmennina: „Þetta eru gersamlega vanhæfir einstaklingar“
Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, tekur upp hanskann fyrir Sjálfstæðismenn vegna þeirra fjölmörgu fyrirspurna sem Guðlaugur Þór Þór...
Óhugnanleg frásögn úr æsku Russell Brand – Faðirinn keypti vændiskonu handa honum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Óhugnanleg frásögn úr æsku Russell Brand – Faðirinn keypti vændiskonu handa honum
Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand, sem hefur verið sakfelldur fyrir alvarleg kynferðisbrot, var aðeins 17 ára þegar faðir hans keypti vændi...
MAST boðar rannsókn og gagnrýnir Einar Loga - „Aldrei réttlætanlegt með neinum hætti“
📅 06.11.2026 👁️ 3
MAST boðar rannsókn og gagnrýnir Einar Loga - „Aldrei réttlætanlegt með neinum hætti“
Einar Logi Pétursson, sem var handtekinn vegna innbrota og sleppinga dýra á nokkrum búum á Kjalarnesi, birti myndband úr innbrotinu í verksmiðju Stjör...
Líti ekki á and­lát dóttur sinnar sem slys - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Líti ekki á and­lát dóttur sinnar sem slys - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í viðtali Heimildarinnar við foreldra Hönnuh, þau Samönthu og Gregory Lane.  Hannah Jane Large lést ásamt tveimur ö...
Hefja ákæruferli á hendur forseta vegna hruns banka
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hefja ákæruferli á hendur forseta vegna hruns banka
Ólga og mótmæli hafa verið í Paragvæ í vikunni eftir að seðlabankinn tók yfir stærsta banka landsins, Ueno-banka.Nær helmingur Paragvæ-búa var í viðsk...
Formaður Dýraverndarsambandsins segir svínabúum bera að huga frekar að velferð dýra en hámarksframleiðslu
📅 06.11.2026 👁️ 4
Formaður Dýraverndarsambandsins segir svínabúum bera að huga frekar að velferð dýra en hámarksframleiðslu
Linda Karen Gunnarsdóttir formaður Dýraverndarsambands Íslands segir aðbúnað dýra á búi Stjörnugríss ekki standast núgildandi reglugerð um velferð sví...
Covid-19 bólu­efni landsins að fyrnast - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Covid-19 bólu­efni landsins að fyrnast - Vísir
Þetta kemur fram í farsóttarfréttum embættis landlæknis þar sem segir að þátttaka í bólusetningum gegn Covid-19 bólusetningum hafi farið minnkandi og ...
Ferðamenn nefna stærstu mistökin sem þeir gerðu á Íslandi – „Ég fór á hestbak án góðs brjóstahaldara“
📅 06.11.2026 👁️ 4
Ferðamenn nefna stærstu mistökin sem þeir gerðu á Íslandi – „Ég fór á hestbak án góðs brjóstahaldara“
Ferðalög eru ekki alltaf einföld. Sérstaklega ekki til framandi og fjarlægra landa þar sem aðstæður eru ekki eins og fólk er vant. Fyrir marga ferðame...
Vika með fimm tíma svefni lækkaði testósterón ungra karla um 10-15%
📅 06.11.2026 👁️ 5
Vika með fimm tíma svefni lækkaði testósterón ungra karla um 10-15%
Testósteróngildi að degi til lækkuðu um 10-15% hjá tíu ungum, heilbrigðum körlum sem fengu aðeins fimm tíma svigrúm til svefns á nóttu í tilraun við C...
Kourani er enn að hrella Íslendinga
📅 06.11.2026 👁️ 4
Kourani er enn að hrella Íslendinga
Sprengjuhótanir hafa borist opinberum stofnunum, leikskólum og fyrirtækjum undanfarna daga, en málin eru til rannsóknar lögreglu. RÚV greinir frá því ...
Prince Harry and five others seek to challenge Mail publisher privacy ruling
📅 06.11.2026 👁️ 2
Prince Harry and five others seek to challenge Mail publisher privacy ruling
The Duke of Sussex and other public figures lost a High Court case against the publisher of the Daily Mail and Mail on Sunday.
Trump ræður sér nýjan starfs­manna­stjóra - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Trump ræður sér nýjan starfs­manna­stjóra - Vísir
 „Mér er ánægja að tilkynna að Stephen Miller, núverandi aðstoðarstarfsmannastjóri Trump-stjórnarinnar og einn af mínum traustustu ráðgjöfum, verður s...
„Það skiptir engu máli hvort þú sért með fötlun eða ekki“
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Það skiptir engu máli hvort þú sért með fötlun eða ekki“
Þær Katrín Lilja, Guðlaug Esther, Bergdís, Klara og Katrín Líf skipa danshópinn Dans án hindrana.Þær eru á aldrinum 11 til 18 ára, æfa hjá Danslistars...
Hélt að svínin myndu hlaupa glöð út - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Hélt að svínin myndu hlaupa glöð út - Vísir
Einar Logi hefur vakið mikla athygli eftir að hann birti tvö myndskeið úr svínabúum Stjörnugríss á Instagram og Facebook þar sem meðal annars má sjá d...
Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir að svelta 190 börn til dauða - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir að svelta 190 börn til dauða - Vísir
Saksóknarar höfðu farið fram á dauðarefsingu gegn Mackenzie og lífstíðardóm fyrir hina 28. Sum barnanna voru bundin á meðan þau sveltu til dauða. Yfir...
Reykjavíkurborg tók niður síðuna eftir fyrirspurn Nútímans – Efnið þó enn á lista fyrir miðstig
📅 06.11.2026 👁️ 5
Reykjavíkurborg tók niður síðuna eftir fyrirspurn Nútímans – Efnið þó enn á lista fyrir miðstig
Svo virðist sem Reykjavíkurborg hafi tekið niður síðu sem var til umfjöllunar hjá Nútímanum fyrr í dag, 6. nóvember. Síðan var opin snemma dagsins 6. ...
Trump names Stephen Miller as new  chief of staff, replacing Susie Wiles
📅 06.11.2026 👁️ 3
Trump names Stephen Miller as new chief of staff, replacing Susie Wiles
Miller, considered the architect of Trump's hard-line immigration policy, will move into the role on Monday.
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
📅 06.11.2026 👁️ 2
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
Þrír dauðadæmdir fangar voru teknir af lífi í Bandaríkjunum í gær, einn í Flórída, annar í Alabama og sá þriðji í Indiana.Slíkt er afar sjaldgæft en þ...
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
📅 06.11.2026 👁️ 3
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
Spanish football always gives us a captivating backdrop for live betting, with matches shifting between slow-built possession and high pressing, amid ...
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
„Við í Hagaskóla ákváðum í sameiningu, það er að segja kennarar, á síðasta skólaári, að endurhugsa svolítið hvernig við notuðum upplýsingatækni eða tæ...
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
📅 06.11.2026 👁️ 4
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
Tenerife is facing an orange rain warning on Sunday as storm Bruna moves across the Canary Islands, with up to 100 millimetres of rain expected in 12 ...
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
Svörin leyndu ekki á sér. Gulur og bleikur eru í uppáhaldi en ekki grár eða steinngrár sem einkennir íslenska byggingarlist og bílaflotan hér á landi....
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem játað hefur innbrotin Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ, birti í dag myndband af innbrot...
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
📅 06.11.2026 👁️ 4
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
Stöðugildum innan Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis fækkar um átta með ráðstöfunum sem gripið var til í vikunni.Í skriflegu svari frá ráðun...
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
📅 06.11.2026 👁️ 4
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sagði í tilkynningu frá skólanum í gær að nauðsynlegt væri að leiðrétta fjármögnun ...
„Við þurfum að laga þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 4
„Við þurfum að laga þetta“
Dagur gegn einelti var haldinn hátíðlegur í Hlíðaskóla. Halla Tómasdóttir forseti Íslands veitti Fjölbrautaskóla Suðurlands hvatningarverðlaun fyrir f...
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
📅 06.11.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
Örvænting stjórnarandstöðunnar og Morgunblaðsins hefur náð nýjum hæðum með þeirri ofuráherslu sem lögð hefur verið á að snúa út úr öllu sem snýr að má...
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
Flugmaður lögregluþyrlu í Bretlandi hefur verið sakaður um að „teikna“ typpamynd á flugkort. Flugmaðurinn segist hafa verið að hringsóla við leit.Bres...
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
Breska sjónvarpsstöðin Sky, búlgarska stöðin Nova TV og RTÉ, írska ríkissjónvarpið, fengu í dag sprengjuhótanir. Rask varð á starfsemi enda þurfti að ...
Spain's rail authorities face European fraud probe after Urda rail disaster
📅 06.11.2026 👁️ 3
Spain's rail authorities face European fraud probe after Urda rail disaster
Prosecutors begin investigating EU funds meant for upgrading the Spanish railway line where a train crash killed 69 people.
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
📅 06.11.2026 👁️ 3
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
Nútíminn hefur fengið afhent gögn frá Akureyrarbæ sem varpa nýju ljósi á ágreining Helgu Daggar Sverrisdóttur, fyrrverandi kennara við Síðuskóla, og s...
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp Fréttin6. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Mikill eldur braust...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Sa...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leiddu til manndráps - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Upp­taka sýnir á­tökin sem leiddu til manndráps - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Sa...
„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Rottupungurinn reyndist vera æxli - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Rottupungurinn reyndist vera æxli - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
Elvar Árni Lund sagði upp starfi sínu sem sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Norðurþings vegna ágreinings um fyrirhugað vindorkuver á Hnotastein...
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
Það er nóg um að vera hjá Siggu Ózk þessa dagana. Í dag gaf hún út aðra plötu sína, Pink Static, sem samanstendur af fimm glænýjum lögum auk hinna áðu...