Sjö flugferðum Icelandair hefur verið aflýst í dag að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra flugfélagsins. Þar af var fjórum aflýst vegna þess að ekki tókst að manna áhafnir.
„Þetta er staða sem við höfum ekki upplifað áður og erum mjög hugsi yfir þessu í ljósi aðstæðna og við biðjum okkar farþega afsökunar á þessu,“ segir Bogi við mbl.is.
Fjórði samningafundur Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, og Icelandair var haldinn í gær og munu kjaraviðræðurnar halda áfram á mánudag.
Bogi segir fundinn í gær hafa gengið ágætlega.
„Þannig við áttum ekki von á því að þetta yrði staðan í dag í hreinskilni sagt.“
Neita óformlegum verkfallsaðgerðum
Bogi hefur áður sagt að margt bendi til þess að áhafnaskorturinn sé tilkominn vegna óformlegra verkfallsaðgerða flugmanna.
Hefur formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) í fjölmiðlum neitað því að um óformlegar verkfallsaðgerðir sé að ræða.
„Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina að kaupa menn út úr fríum,“ sagði Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FíA, á dögunum.