Einn var handtekinn í heimahúsi á Eskifirði í dag í tengslum við yfirstandandi lögreglurannsókn. Þetta staðfestir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi.
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út til að aðstoða við aðgerðina. Götu í bænum var lokað, að því er Vísir greinir frá.
Aðgerðinni er lokið og viðkomandi hefur verið færður til yfirheyrslu.
Kristján sagði ekki unnt að segja til um að hverju rannsóknin beinist né hvers vegna viðkomandi var handtekinn.
Rúmlega vika er síðan sérsveitin var kölluð út til að aðstoða við handtöku í Hveragerði sem tengist rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innflutningi fíkniefna.
Kristján staðfestir að aðgerðin í dag sé ekki hluti af annarri eða stærri rannsókn.
Fréttin hefur verið uppfærð.