„Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs í hádeginu. Brugðist var hratt við og var lögreglan með mikinn viðbúnað í ljósi tilkynningarinnar,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.
„Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.“
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Hildur Rún Björnsdóttir hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sagðist ekkert geta tjáð sig um málið þegar Vísir hafði samband, annað en að aðgerðin stæði enn yfir í húsabyggð á Kársnesi.
Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, hefur staðfest við Vísi að sérsveitarmenn séu á staðnum. Varðstjóri slökkviliðsins segir við Vísi að tveir sjúkrabílar hafi verið sendir á vettvang að beiðni lögreglu.
Sjónarvottur segir að lögregluaðgerðin sé við Hafnarbraut 12. Búið er að girða af stórt svæði á Kársnesinu. Á myndskeiði sem Vísir hefur séð mátti sjá lögreglumann leggja niður merkimiða — að því er virðist fyrir sönnunargagnsnúmer — á stigagangi.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.