Búið er að reka Olha Stefanishyna úr starfi sendiherra Úkraínu í Bandaríkjunum. Stefanishyna var rekin að beiðni Úkraínuforseta Volodmyr Zelensky en brottreksturinn er liður í uppstokkun úkraínsku ríkisstjórnarinnar, herforingja og annarra hátt settra embættismanna.
Olha tók við embætti sendiherra í ágúst 2025.
Zelensky boðaði í júlí að von væri á uppstokkun í stjórnsýslu landsins. Ekki er þó nákvæmlega vitað af hverju Stefanishyna var rekin.
Úkraína vinnur nú að samningi við Bandaríkin um afhendingu á Patriot-flugskeytum og möguleikann á framleiðslu þeirra í Úkraínu.
Zelensky hefur ekkert tjáð sig um brottrekstur sendiherrans. Ekki hefur verið tilkynnt um hver taki við embættinu í stað hennar.