Segir skýrt að það sé ekki heimilt að fara í Selárlaug eftir lokun
Sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps hefur ekki kært innbrot í Selárlaug til lögreglu eftir að fimm þingmenn fóru þangað inn í leyfisleysi. Sveitarstjórinn segir það skýrt að það sé óheimilt að fara í laugina eftir lokun og þetta sé ekki eitthvað sem menn eiga að gera.
„Ég hef ekki fengið neinar upplýsingar um að mönnum hafi verið veittar heimildir,“ segir Björn Ingimarsson, starfandi sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps, spurður út í umdeilda sundferð þingmanna sem RÚV greindi frá fyrir helgi. Þingmennirnir sögðust hafa fengið leyfi fyrir ferðinni.
Fimm þingmenn munu hafa farið í Selárlaug eftir lokun og eru þeir sagðir vera Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknarflokksins, Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður Miðflokksins, Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, og Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Hugmyndin kviknaði yfir kvöldverði
Hópurinn fór í sund í kjördæmavikunni en hugmyndin kviknaði yfir kvöldverði á hótelinu Fossgerði ásamt fulltrúum úr sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps eftir kynningu frá Six Rivers, fyrirtæki Jims Ratcliffe.
„Ég hef ekki fengið neinar upplýsingar um að mönnum hafi verið veittar heimildir“
Þórarinn Ingi, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði í samtali við RÚV að sveitarstjórnarfulltrúi hefði gefið leyfi fyrir sundferðinni og leiðbeint þeim um hvernig þeir ættu að …