Samfélagsmiðlanotkun ungs fólks er jafnhættuleg heilsu þess og reykingar. Þetta kemur fram í umsögn Akademíu konunglegu læknaháskólanna (e. Academy of Medical Royal Colleges) fyrir starfshóp stjórnvalda í Bretlandi um samfélagsmiðlanotkun barna undir 16 ára.
Stjórnvöld hleyptu starfshópnum Growing Up In The Online World af stokkunum í janúar. Tilgangurinn er að hjálpa ráðherrum að semja leiðbeiningar um skjátíma sem byggja á vísindalegum grunni fyrir foreldra barna á aldrinum fimm til sextán ára.
Liz Kendall tækniráðherra hefur sagt nýjar aðgerðir um samfélagsmiðlanotkun ungmenna verða innleiddar fyrir árslok. Samráði um málið lýkur þá. „Spurningin er ekki hvort við ætlum að grípa til aðgerða, við ætlum að gera það,“ sagði Kendall við breska ríkisútvarpið, BBC.
Sífellt fleiri kalla eftir því að ríkisstjórn Bretlands fylgi Áströlum eftir og banni samfélagsmiðlanotkun fyrir börn yngri en 16 ára.
Yfir 70 þúsund umsagnir hafa borist starfshópnum, frá meðal annars góðgerðarsamtökum, baráttuhópum og almenningi.
Í 50 blaðsíðna umsögn Akademíu konunglegu læknaháskólanna segir að af 454 læknum hafi um helmingur meðhöndlað að minnsta kosti eitt barn á viku sem upplifi andlega vanlíðan eða hafi orðið fyrir líkamlegum meiðslum vegna efnis á netinu, sérstaklega ofbeldisfulls efnis.
Læknar sjái bylgju öfgafullra barna sem verði fyrir „hatursfullu, ávanabindandi og ógeðfelldu efni.“
Formaður akademíunnar segir það sameiginlegt álit flestra lækna að of mikill skjátími skaði börn og ungmenni. „Við verðum að takast á við þetta frekar en að bíða aðgerðarlaus eftir að einhver annar sanni orsakasamhengi.“
Akademían telur að það ættu að vera leiðbeiningar til staðar fyrir lækna og heilbrigðisstarfsfólk um hvernig eigi að koma auga á óviðeigandi og óholla notkun samfélagsmiðla og efnis á netinu.
Lokadagur starfshópsins er í dag. Búist er við að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, fundi með foreldrum sem segja samfélagsmiðlanotkun hafa átt þátt í dauða barna þeirra.
Starmer hefur heitið því að grípa til aðgerða til að vernda börn en leggur áherslu á að hann ætli ekki að grípa til aðgerða fyrr en starfshópurinn hafi skilað sinni niðurstöðu.