Landsréttur hefur staðfest áframhaldandi gæsluvarðhald yfir einum þriggja manna sem ákærðir eru fyrir tilraun til manndráps í svokölluðu Höfðatorgsmáli. Maðurinn verður í gæsluvarðhaldi til 3. ágúst.
Mennirnir eru sakaðir um að hafa ráðist á mann í bílakjallara við Höfðatorg aðfaranótt 17. mars. Samkvæmt ákæru var ekið á brotaþola á miklum hraða, hann síðan barinn með áhaldi og að lokum stunginn í rasskinn með eggvopni. Brotaþolinn var fluttur á sjúkrahús í lífshættulegu ástandi.
Ekki eggvopn að eigin sögn
Við yfirheyrslur hjá lögreglu neitaði maðurinn sök. Hann viðurkenndi að hafa verið á vettvangi en sagðist ekki hafa tekið þátt í árásinni. Þegar lögregla sýndi honum myndskeið þar sem hann virtist halda á eggvopni sagði hann að um afrískan tannbursta hefði verið að ræða.
Í rannsóknargögnum segir hins vegar að á upptökum úr öryggismyndavélum sjáist maðurinn halda á eggvopni áður en ráðist var á brotaþola og síðar leggja til hans þegar hann lá á jörðinni eftir að ekið hafði verið á hann.
Hætta á landflótta
Landsréttur taldi áfram rökstuddan grun leika á að maðurinn hefði tekið þátt í árásinni. Þá var einnig litið til þess að hann væri erlendur ríkisborgari með lítil sem engin tengsl við Ísland og því væri hætta á að hann reyndi að komast úr landi ef honum yrði sleppt úr haldi. Af þeim sökum var úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald staðfestur.
