Safna fyrir flutningi mannsins sem lést í banaslysinu í Þrengslum

Vinir og aðstandendur Javier Monsalve, sem lést í alvarlegu bílslysi í Þrengslum sunnudaginn 26. júlí síðastliðinn, hafa hrundið af stað söfnun til að standa straum af kostnaði við að flytja lík hans til Spánar þar sem hann verður jarðsunginn.
Frá þessu greinir Berglind Sif Viðarsdóttir í færslu á Facebook.
Að sögn Berglindar var Javier, sem var frá Kólumbíu en hafði búið á Spáni frá unga aldri, „fallegasta sál í heimi“ og „elskaður af öllum“.
„Sá skelfilegi atburður gerðist á sunnudagskvöld að vinur minn til 15 ára og fallegasta sál í heimi, lést í alvarlegu bílslysi í Þrengslunum. Fullt af fólki er lamað af sorg,“ skrifar hún.
Hún segir að Javier hafi aðeins átt tvo nána aðstandendur á Íslandi, hana og eiginmann hennar.
„Eftir situr hryllilegur kostnaður við að koma honum aftur til Spánar þar sem brotin fjölskylda situr og bíður eftir að sjá son og bróður í síðasta skipti,“ segir Berglind.
Hún segir að þau hjónin hafi ákveðið að greiða sjálf 1,1 milljón króna til að standa undir flutningskostnaði.
„Til að létta undir móður hans Javi á mjög erfiðum tímum tókum við ákvörðun um að losa hans fjölskyldu undan flutningskostnaði og ætlum við að greiða 1.100.000 til að koma honum til Spánar og láta jarða hann þar,“ skrifar hún.
Samkvæmt færslunni verður Javier fluttur til Spánar 12. ágúst.
Berglind hvetur þá sem vilja leggja fjölskyldunni lið til að styrkja söfnunina. Hún tekur fram að reikningurinn sé eingöngu ætlaður kostnaði við flutning hans til Spánar.
Reikningsupplýsingar:
- Reikningsnúmer: 0511-14-067797
- Kennitala reikningseiganda: 040594-21