Þingmenn Dúmunnar, neðri deildar rússneska þingsins, samþykktu í gær lög um rússneska ríkisborgara sem búa erlendis en eiga yfir höfði sér lögsókn heima fyrir á pólitískum grundvelli. Lögin frysta bankareikninga, afnema eignarrétt og afnema rétt til þjónustu sendiráða. Á grundvelli laganna verður umsóknum viðkomandi um alþjóðlegt vegabréf eða vottun á skjölum á borð við erfðaskrár hafnað.
Vyacheslav Volodin talsmaður Dúmunnar sagði lögin miðuð að þeim sem valda Rússlandi skaða. „Við erum að tala um öfgafólk og föðurlandssvikara. Þá sem hafa í mörg ár gert allt til að eyðileggja ríkið. Þá sem réttlæta nasisma, móðga hermenn okkar og embættismenn en fela sig fyrir refsingu í öðrum löndum,“ sagði Volodin áður en atkvæðagreiðslan um lögin hófst.
Lögin gilda einnig um Rússa sem hefur þegar verið refsað fyrir brot á lögum um erlenda útsendara, fyrir að kalla eftir refsiaðgerðum gegn Rússlandi, fyrir gagnrýni á rússneska herinn og fyrir þátttöku í félögum sem Rússland telur óæskileg.
Jafngildir sviptingu ríkisborgararéttar
Hópur lögfræðinga sem ver hagsmuni Rússa sem sakaðir eru um landráð og njósnir segir áhrif laganna jafngilda sviptingu ríkisborgararéttar.
Talið er að allt að ein milljón Rússa hafi flúið landið á fyrsta ári innrásarinnar. Lögunum, sem taka gildi strax, er meðal annars ætlað að ná til þessa hóps.
Síðan innrásin í Úkraínu hófst hefur rússneska þingið nokkrum sinnum sett lög sem kveða eiga niður andóf gegn Rússlandi. Til að mynda hafa verið sett lög sem banna dreifingu „vísvitandi rangra upplýsinga“ um rússneska herinn. Þá er ólöglegt að dreifa upplýsingum sem veikja traust á hernum. Talið er að að minnsta kosti 692 einstaklingar hafi verið lögsóttir á grunni þessara tveggja laga.
Þá hefur fjölmiðlum í Rússlandi verið bannað að nota orð á borð við stríð, innrás og árás. Það hefur leitt til lokunar fjölda sjálfstæðra rússneskra fjölmiðla.