Kjörsókn utan kjörfundar hefur verið töluverð fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Kjördagur er á morgun en þegar hefur tæpur fjórðungur kjósenda greitt atkvæði, eða 23% þeirra.
Í allan dag hefur verið röð hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og í Kringlunni vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslunnar. Í höfuðborginni hafa um fimm þúsund manns skilað inn atkvæði í dag og rúmlega 42 þúsund kjósendur frá því að utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst 27. júlí.
Alls hafa rúmlega 63 þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar hjá sýslumönnum, sendiráðum eða ræðismönnum erlendis. Á áttunda þúsund kjósenda hafa skilað inn atkvæði sínu í dag.
Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, segir ýmsar ástæður fyrir góðri kjörsókn.
„Það er greinilega mjög mikill áhugi á þessum kosningum. Það er búin að vera mjög mikil umræða, margir umræðuþættir í sjónvarpinu. Við tökum eftir því að það koma fleiri að kjósa eftir þá. Síðan er spurning með tímasetningu kosningarinnar. Fólk er á faraldsfæti. Það eru nokkrir sem eru búsettir erlendis og voru í heimsókn á Íslandi sem notuðu tækifærið og kláruðu að kjósa og svo stúdentar sem voru á leiðinni aftur í nám í útlöndum, þeir komu til okkar.“
Hægt verður að greiða atkvæði utan kjörfundar milli tíu og sautján á morgun í Hlíðarsmára 1 í Kópavogi. Kjörstaðir verða víða opnaðir klukkan níu í fyrramálið. Upplýsingar um opnunartíma kjörstaða má finna á vefsíðum sveitarfélaga.