Grunn lægð fer yfir landið í dag og því má búast við skúrum víða um land. Á Suðausturlandi verður þó samfelld rigning um tíma. Vindur verður alla jafna hægur en síðdegis snýst rólega í vestanátt. Hiti verður á bilinu 7 til 13 stig.
Á morgun er spáð suðvestan kalda og smáskúrum víða, þó síst á Suðurlandi. Hiti breytist lítið og svipað veður er í kortunum á miðvikudag.
Á fimmtudag gæti kólnað talsvert á Norðurlandi þegar vindur snýst í norðaustanátt. Einhverjar líkur eru á slyddu eða snjókomu en nokkur óvissa er enn um hversu mikillar úrkomu er að vænta. Sunnanlands er von á rigningu og mun mildara veðri.
Veðurstofan ráðleggur þeim sem stefna á ferðalög norðan heiða að fylgjast vel með veðurspám næstu daga.