Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

Rétttrúnaðarkirkja
Rétttrúnaðarkirkjan sem aldrei reisHugmynd um útlit kirkjunnar sem nú hefur svipt byggingarleyfi
Mynd: orthodox.is

Rétttrúnaðarsöfnuðurinn á Íslandi segir allan undirbúning að kirkjubyggingu við Mýrargötu 21–23 vera lokið og fjármögnun liggja fyrir. Söfnuðurinn óskar eftir samtali við Reykjavíkurborg eftir að borgarráð ákvað að afturkalla lóðaúthlutunina.

Rétttrúnaðarsöfnuðurinn á Íslandi harmar ákvörðun borgarráðs frá 8. október um að afturkalla lóðaúthlutun að Mýrargötu 21–23. Í yfirlýsingu sem send var á fjölmiðla í morgun segir söfnuðurinn að ákvörðunin hafi komið á óvart, enda hafi verið regluleg samskipti við Reykjavíkurborg um verkefnið á undanförnum árum.

Að sögn safnaðarins er undirbúningi kirkjubyggingarinnar lokið og fjármögnun liggur fyrir. Söfnuðurinn segir að einungis byggingarleyfi vanti til að hægt sé að hefja framkvæmdir.

„Ef við fengjum byggingarleyfið á morgun gætum við hafið framkvæmdir á morgun,“ segir í yfirlýsingunni.

Teikningar samþykktar í september

Í yfirlýsingunni kemur fram að söfnuðurinn hafi um árabil unnið að hönnun kirkjunnar og gerð nauðsynlegra verkfræðiteikninga. Samkvæmt honum voru síðustu teikningarnar samþykktar af Reykjavíkurborg 7. september síðastliðinn og umsóknin hafi verið tekin til afgreiðslu.

Söfnuðurinn segir fyrri tafir ekki hafa stafað af áhugaleysi. Covid-19-faraldurinn hafi stöðvað vinnuna um langt skeið, auk þess sem hönnuninni hafi verið breytt til að koma til móts við óskir íbúa í nágrenninu. Upphafleg stærð byggingarinnar hafi jafnframt verið minnkuð.

Þá hafi Reykjavíkurborg breytt deiliskipulagi svæðisins nokkrum sinnum frá árinu 2008.

Segja lóðina ekki hafa verið yfirgefna

Söfnuðurinn hafnar því að lóðin hafi verið yfirgefin. Hún hafi verið blessuð af háttsettum klerkum kirkjunnar að viðstöddum fyrrverandi forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni.

Samkvæmt yfirlýsingunni koma meðlimir safnaðarins saman á lóðinni á hverjum sunnudegi til bænahalds í lítilli bráðabirgðakapellu úr timbri sem helguð er heilögum Nikulási. Söfnuðurinn segir lóðina þegar hafa sérstaka trúarlega merkingu fyrir marga.

Rétttrúnaðarsöfnuðurinn þjónar fólki af fjölbreyttum uppruna og segir yfir þúsund trúaða sækja hann á hverju ári. Þar séu meðal annars Íslendingar, Úkraínumenn, Rússar, Serbar, Grikkir, Rúmenar og fólk frá ýmsum öðrum löndum.

Söfnuðurinn hefur lengi stefnt að því að reisa eigin kirkju í Reykjavík. Í yfirlýsingunni segir að byggingin eigi ekki aðeins að vera bænahús heldur einnig opinn samkomustaður fólks af ólíkum uppruna og falleg viðbót við borgarmynd Vesturbæjarins.

Óskar eftir samtali við yfirvöld

Söfnuðurinn telur að fara eigi varlega í málið og að mögulegt sé að grípa til vægari úrræða en að afturkalla lóðina.

Hann óskar eftir opnu samtali við fulltrúa Reykjavíkurborgar, önnur yfirvöld og alla stjórnmálaflokka með það að markmiði að finna lausn sem geri kleift að hrinda verkefninu í framkvæmd.

Í yfirlýsingunni er einnig boðið til samtals um hönnun kirkjunnar og þær áætlanir sem þegar liggja fyrir. Borgarstjóra, forseta Íslands og fulltrúum allra stjórnmálaflokka er jafnframt boðið að sækja sunnudagsguðsþjónustu safnaðarins að Öldugötu 44 í Vesturbænum klukkan 10.

Yfirlýsinguna undirritar Timur Zolotuskiy, sóknarprestur Rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi.

Yfirlýsing vegna afturköllunar lóðarinnar að Mýrargötu 21–23

Reykjavík, 10. október 2026

Um árabil hefur rétttrúnaðarsöfnuðurinn á Íslandi tekið á móti fólki frá tugum þjóða: Búlgörum, Íslendingum, Rússum, Úkraínumönnum, Serbum, Georgíumönnum, Rúmenum, Grikkjum, Egyptum, Eþíópíumönnum, Hvít-Rússum, Englendingum, Bandaríkjamönnum og mörgum öðrum. Á hverju ári sækja yfir þúsund trúaðir söfnuðinn. Rétttrúnaðurinn er andleg leið sem stendur öllum opin sem leita samfélags, friðar og samkenndar.

Söfnuðurinn harmar ákvörðun borgarráðs frá 8. október um að afturkalla lóðaúthlutun safnaðarins að Mýrargötu 21–23. Á undanförnum árum hefur söfnuðurinn átt í virkum og reglubundnum samskiptum við stjórnsýslu Reykjavíkurborgar og viðkomandi svið borgarinnar vegna framkvæmdanna.

Við áttum því ekki von á þessari niðurstöðu og ákvörðunin kom okkur á óvart. Söfnuðurinn hefur um langt árabil verið hluti af íslensku samfélagi og við erum þakklát fyrir þann stuðning og velvilja sem við höfum notið hjá Reykjavíkurborg og borgarbúum.

Lóðin hefur aldrei verið yfirgefin. Hún var blessuð af háttsettum klerkum kirkjunnar að viðstöddum fyrrverandi forseta Íslands, Hr. Ólafi Ragnari Grímssyni. Á hverjum sunnudegi biðjum við saman á lóðinni, í lítilli bráðabirgðakapellu úr timbri sem helguð er heilögum Nikulási. Í hugum trúaðra er lóðin þegar heilagur staður sem á sérstakan stað í hjörtum margra.

Um árabil hefur söfnuðurinn unnið að undirbúningi kirkjubyggingar á lóðinni, þar á meðal að hönnun hússins og öllum nauðsynlegum verkfræðiteikningum. Þær síðustu voru samþykktar af Reykjavíkurborg 7. september 2026, fyrir einum mánuði síðan. Allri nauðsynlegri vinnu er lokið og umsóknin hefur verið tekin til afgreiðslu.

Fyrri tafir stöfuðu ekki af áhugaleysi. Covid-19-faraldurinn stöðvaði verkið um langt skeið. Hönnuninni var einnig breytt til að koma til móts við óskir íbúa í nágrenninu og upphafleg stærð byggingarinnar var minnkuð. Auk þess hefur Reykjavíkurborg breytt deiliskipulagi svæðisins nokkrum sinnum frá árinu 2008.

Söfnuðurinn þjónar fjölda trúaðra á Íslandi af ólíkum uppruna, þar á meðal íslensku rétttrúnaðarfólki, sem hafa lengi beðið eftir eigin kirkju í Reykjavík. Kirkjan á að verða meira en bænahús. Hún á að vera opinn staður þar sem fólk af ólíkum uppruna getur komið saman, og falleg viðbót við borgarmyndina í Vesturbænum.

Byggingin er hönnuð á grunni fornra norrænna hefða og hefða austrænnar kristni. Við byggingu hennar er fylgt meginreglum sjálfbærrar mannvirkjagerðar og hún uppfyllir kröfur um lífsferilsgreiningu (LCA).

Rétttrúnaðurinn er fyrst og fremst leið samfélags. Hann er sá lífsmáti að lifa í tengslum við allar aðrar manneskjur og allt sköpunarverkið. Hann er leið fyrir alla sem þrá líf í samkennd, friði og gagnkvæmri umhyggju. Kirkjan er til þess að minna okkur á að manneskjan er ekki ein, að við tilheyrum öll einu samfélagi, samfélagi allra manna, og að tilgang lífsins sé að finna í tengslum, við Guð og hvert við annað. Við hverja sunnudagsmessu er Faðirvorið beðið á að minnsta kosti tólf tungumálum.

Borgin óskaði eftir tímaáætlun fyrir næsta áfanga. Söfnuðurinn svaraði því til að allri undirbúningsvinnu væri lokið, að það eina sem vantaði væri byggingarleyfið og að við hefðum því uppfyllt okkar hluta.

Við erum tilbúin að hefjast handa og fjármögnun liggur fyrir. Ef við fengjum byggingarleyfið á morgun gætum við hafið framkvæmdir á morgun.

Við teljum að yfirvöld eigi að fara með þetta mál af mikilli varfærni og að vægari úrræði séu möguleg.

Fyrir fjörutíu árum var haldinn í Reykjavík fundur sem sýndi öllum heiminum mátt samtalsins, og síðan hefur Ísland verið þekkt sem staður þar sem samtal getur breytt heiminum.

Í þeim anda óskum við einlæglega eftir góðum samskiptum við fulltrúa yfirvalda, svo að við getum saman fundið lausn á þessari nýju stöðu sem snertir okkur öll. Við óskum eftir opnu samtali og samskiptum við öll yfirvöld og alla stjórnmálaflokka til að finna leið til að verkefnið, sem er fullhannað, geti orðið að veruleika.

Við bjóðum öllum fulltrúum að kynna sér hönnun kirkjunnar og þær áætlanir sem liggja fyrir. Jafnframt bjóðum við borgarstjóra, Forseta Íslands og fulltrúum allra stjórnmálaflokka hjartanlega að sækja með okkur guðsþjónustu sem haldin er alla sunnudaga kl. 10:00 að Öldugötu 44 í Vesturbænum.

Guð blessi okkur öll.

Timur Zolotuskiy,
sóknarprestur Rétttrúnaðarkirkjunnar
og starfsmaður býtibúrs á Landspítala Landakoti

#afturköllun #harmar #lóðar #mýrargötu #rétttrúnaðarkirkjan


Upprunaleg slóð:
https://mannlif.is/greinar/retttrunadarkirkjan-harmar-afturkollun-lodar-a-myrargotu/

📰 Aðrar fréttir

Dóra Sif Tynes: Hæstiréttur hefur talað skýrt – Alþingi hefur ekki innleitt bókun 35
📅 11.10.2026 👁️ 1
Dóra Sif Tynes: Hæstiréttur hefur talað skýrt – Alþingi hefur ekki innleitt bókun 35
Hæstiréttur hefur talað skýrt. Við höfum ekki innleitt bókun 35 þannig að íslenskir dómstólar geti beitt þeirri forgangsreglu sem bókunin felur í sér....
UK does not support Trump's Russia diesel deal, says Streeting
📅 11.10.2026 👁️ 1
UK does not support Trump's Russia diesel deal, says Streeting
The defence secretary says the US and its allies need to increase pressure on Vladimir Putin to end the war with Ukraine.
Leiðin­leg frekja segist hvorki leiðin­leg né frek - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
Leiðin­leg frekja segist hvorki leiðin­leg né frek - Vísir
Undanfarið hefur borið á því að fólk hafi fordæmt vinnubrögð fjölmiðla á meðan aðrir hrósa og lofa. Á dögunum var Elísabet Inga Sigurðardóttir til að ...
Vara við því að fara um flug­velli í Sádí-Arabíu - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
Vara við því að fara um flug­velli í Sádí-Arabíu - Vísir
Í umfjöllun BBC kemur fram að Hútar hafi þagað þunnu hljóði eftir árás gærdagsins þar til í dag. Hútar hafa um árabil barist gegn Sádí-Arabíu og banda...
Pope Leo XIV to have surgery after lump found on lung
📅 11.10.2026 👁️ 1
Pope Leo XIV to have surgery after lump found on lung
The 71-year-old pontiff said the nodule was identified "at a very early stage".
Rafmagnsvopn í fórum manns sem var handtekinn fyrir líkamsárás
📅 11.10.2026 👁️ 1
Rafmagnsvopn í fórum manns sem var handtekinn fyrir líkamsárás
Lögregla handtók mann í gærkvöld sem er grunaður um líkamsárás og brot á vopnalögum. Rafmagnsvopn, svokallaður „taser“ eða stuðbyssa, fannst í fórum m...
Meiri einmanaleiki meðal þeirra sem ná ekki endum saman
📅 11.10.2026 👁️ 1
Meiri einmanaleiki meðal þeirra sem ná ekki endum saman
Landlæknisembættið hefur fylgst með þróun einmanaleika hjá þjóðinni frá 2016.Niðurstöðurnar sýna að einmanaleiki hefur aukist lítillega á þeim tíma.Ei...
Nepal: Buildings swept away as flash floods hit Budhi Gandaki river
📅 11.10.2026 👁️ 1
Nepal: Buildings swept away as flash floods hit Budhi Gandaki river
A flash flood at the Budhi Gandaki River has swept away several buildings and bridges, two months after catastrophic floods hit the country.
Sendum Möggu Stínu í Euro­vision - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Sendum Möggu Stínu í Euro­vision - Vísir
Klippa: Í bóli Bjarnars - Friðrik Ómar Jólin eru á næsta leiti. Eða eru þau það? Október er rétt að byrja. Fólk, margt hvert, amast við því að fá ekki...
Erfitt að sjá að ávinningurinn af fölsuðum peptíðum sé áhættunnar virði
📅 11.10.2026 👁️ 2
Erfitt að sjá að ávinningurinn af fölsuðum peptíðum sé áhættunnar virði
Notkun ólöglegra peptíða hefur sprungið út á Íslandi síðasta árið. Á samfélagsmiðlum eru markaðssettar mismunandi tegundir peptíða sem eru sagðir hafa...
Lóð flugskýlis minnkuð um nær helming – kröfum kaupenda hafnað
📅 11.10.2026 👁️ 2
Lóð flugskýlis minnkuð um nær helming – kröfum kaupenda hafnað
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfum kaupenda eignarhluta í flugskýli á Akureyrarflugvelli um að fella úr gildi samþykkt bygg...
Erfðaprinsinn Alois og átökin um réttindi kvenna í Lichtenstein
📅 11.10.2026 👁️ 2
Erfðaprinsinn Alois og átökin um réttindi kvenna í Lichtenstein
Í Lichtenstein er við lýði það sem kallað er stjórnarskrárbundið furstadæmi. Furstinn - eða prinsinn eins og kannski væri réttara að kalla hann, heiti...
Erfðaprinsinn Alois og átökin um réttindi kvenna í Liechtenstein
📅 11.10.2026 👁️ 1
Erfðaprinsinn Alois og átökin um réttindi kvenna í Liechtenstein
Í Liechtenstein er við lýði það sem kallað er stjórnarskrárbundið furstadæmi. Furstinn - eða prinsinn eins og kannski væri réttara að kalla hann, heit...
Opna tvær nýjar deildir á Akureyri
📅 11.10.2026 👁️ 2
Opna tvær nýjar deildir á Akureyri
Tvær nýjar deildir eru á teikniborðinu hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri. Markmiðið með þeim er að skapa svigrúm innanhúss, fækka innlögnum og tryggja betra...
Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengi­sandi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengi­sandi - Vísir
Í dag eru nákvæmlega 40 ár liðin frá því að leiðtogar stórveldanna, Reagan og Gorbatsjoff, hittust hér í Reykjavík til að freista þess að ljúka kjarno...
Tugir slösuðust vegna ský­stróka á Sikil­ey - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Tugir slösuðust vegna ský­stróka á Sikil­ey - Vísir
Að minnsta kosti ellefu voru fluttir á sjúkrahús eftir að hafa orðið fyrir braki og glerbrotum, að því er Guardian greinir frá. Sjötugur maður var með...
Reyndi að brjóta sér leið inni í íbúð í Kópavogi vopnaður hnífi og hamri
📅 11.10.2026 👁️ 2
Reyndi að brjóta sér leið inni í íbúð í Kópavogi vopnaður hnífi og hamri
Óskað var eftir aðstöð lögreglu vegna manns í Kópavogi sem reyndi að brjóta sér leið inn í íbúð vopnaður hnífi og hamri. Þetta kemur fram í dagbók lög...
Fáni hryðjuverkasamtaka vekur athygli í Palestínugöngu í Reykjavík
📅 11.10.2026 👁️ 2
Fáni hryðjuverkasamtaka vekur athygli í Palestínugöngu í Reykjavík
Fáni hryðjuverkasamtaka vekur athygli í Palestínugöngu í Reykjavík Fréttin11. október 2026InnlentLeave a Comment Rauður fáni með merki Alþýðufylkingar...
Mannskæðasta árás í Sádi-Arabíu í rúman áratug
📅 11.10.2026 👁️ 2
Mannskæðasta árás í Sádi-Arabíu í rúman áratug
Að minnsta kosti tólf eru látnir og yfir þrjú hundruð eru særðir eftir árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, í gær. Nokkrir hinna s...
Eitt „læk“ getur sprengt sam­bandið – hjá bæði tví­tugum og átt­ræðum - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Eitt „læk“ getur sprengt sam­bandið – hjá bæði tví­tugum og átt­ræðum - Vísir
Samt eiga flest pör eitt sameiginlegt:  Þau langar svo að vera hamingjusöm! „Yngsta parið sem hefur leitað til mín var 17 ára gamalt,“ segir Íris Eik ...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Enn skapar Þorgerður Katrín óróa
📅 11.10.2026 👁️ 2
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Enn skapar Þorgerður Katrín óróa
Mynd Koma utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi
📅 11.10.2026 👁️ 3
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna storms á Suðurlandi í kvöld og nótt.Vaxandi lægð nálgast landið með suðaustan hvassviðri eða sto...
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi og Faxaflóa
📅 11.10.2026 👁️ 1
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi og Faxaflóa
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna storms á Suðurlandi og Faxaflóa í kvöld og nótt.Vaxandi lægð nálgast landið með suðaustan hvassv...
Minnir  helst á fangabúðir nasista
📅 11.10.2026 👁️ 3
Minnir helst á fangabúðir nasista
Hundruð Íslendinga voru send til afplánunar í dönskum fangelsum á 18. og 19. öld. Dánartíðni íslenskra fanga var hærri en fanga af öðrum þjóðernum og ...
Rony the hero police dog honoured for finding missing people in the Canary Islands
📅 11.10.2026 👁️ 2
Rony the hero police dog honoured for finding missing people in the Canary Islands
Meet Rony, a Springer Spaniel serving with the National Police in the Canary Islands, who has received a special honour for his remarkable work helpin...
40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða
📅 11.10.2026 👁️ 3
40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða
Óhætt er að segja að allt hafi farið á annan endann í íslensku samfélagi árið 1986 þegar tilkynnt var með aðeins tólf daga fyrirvara að leiðtogar Band...
Suð­austan stormur og gul við­vörun - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Suð­austan stormur og gul við­vörun - Vísir
Í hugleiðingum sínum segir veðurfræðingur Veðurstofunnar að vaxandi lægð á Grænlandshafi sé á norðurleið og að skilin frá henni nálgist landið. Hægt v...
Braust inn með hníf í einni og hamar hinni - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Braust inn með hníf í einni og hamar hinni - Vísir
Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn handtekinn og vistaður í fangaklefa. Í Háaleitis- og Bústaðahverfi var maður handtekinn fyrir líkamsárás og brot...
Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni - Vísir
Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn handtekinn og vistaður í fangaklefa. Í Háaleitis- og Bústaðahverfi var maður handtekinn fyrir líkamsárás og brot...
Stal heilum sjóðsvélum og braust inn í skip – ekki gerð refsing
📅 11.10.2026 👁️ 4
Stal heilum sjóðsvélum og braust inn í skip – ekki gerð refsing
Maður sem stal meðal annars heilum sjóðsvélum, golfpoka og bjórkútum og færði rúma eina og hálfa milljón króna inn á eigin reikning með stolnum greiðs...
Óttast stefnubreytingu hjá DR
📅 11.10.2026 👁️ 4
Óttast stefnubreytingu hjá DR
Óttast stefnubreytingu hjá DR Dansk­ir leik­ar­ar, leik­stjór­ar, hand­rits­höf­und­ar, mynda­töku­menn og fleiri sem unn­ið hafa að gerð leik­inna sj...
Jet2 cancels all flights to La Palma just months after launch
📅 11.10.2026 👁️ 4
Jet2 cancels all flights to La Palma just months after launch
Jet2 has confirmed it is withdrawing its flights and holiday packages to La Palma, just six months after launching its first direct service to the isl...
Handtekinn vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum
📅 11.10.2026 👁️ 4
Handtekinn vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum
Maður var handtekinn í hverfi 108 í Reykjavík í gær eða nótt vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum. Í dagbók lögreglunnar segir að maðurinn hafi ve...
Rain eases across the Canary Islands this bank holiday Sunday
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rain eases across the Canary Islands this bank holiday Sunday
The Canary Islands are expecting an improvement in weather conditions today, Sunday 11th October, although occasional rain showers remain possible acr...
Drónaárás á rússneskt gagnaver
📅 11.10.2026 👁️ 4
Drónaárás á rússneskt gagnaver
Þetta er þriðja árás Úkraínuhers á gagnaver rússneska fyrirtækisins Yandex á innan við viku. Fyrirtækið hefur verið kallað rússneska Google, en það re...
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
CJP at Jantar Mantar: Delhi sees more protests as 'Cockroach' group's arrested leaders freed
📅 11.10.2026 👁️ 2
CJP at Jantar Mantar: Delhi sees more protests as 'Cockroach' group's arrested leaders freed
Police say they will keep restricting access to the city centre after thousands of people were detained and released on Saturday.
Liverpool v Manchester City: Toxicity and uncertainty await City at Liverpool - will their season even matter?
📅 11.10.2026 👁️ 4
Liverpool v Manchester City: Toxicity and uncertainty await City at Liverpool - will their season even matter?
Manchester City visit Liverpool on Sunday with a lot of uncertainty hanging over them. Phil McNulty looks at what lies ahead.
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.The Times segir að lögreg...
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 5
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 5
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 5
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 4
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 4
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 4
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 4
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
📅 11.10.2026 👁️ 4
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND) Fréttin11. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Úkraína ætti að skipta út V...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir Fréttin10. október 2026ErlentLeave a Comment King Khalid-alþjóðaflugvöllurinn...
I was told I had depression for 14 years until I got sectioned - it was bipolar
📅 10.10.2026 👁️ 3
I was told I had depression for 14 years until I got sectioned - it was bipolar
Kimberley Atkinson assumed her symptoms were depression until her behaviour started to change dramatically.