Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært karlmann fyrir að hafa ráðist á dreng í Salalaug í Kópavogi árið 2023.
Í ákæru yfir manninum segir að maðurinn hafi tekið utan um háls drengsins og ýtt honum aftur á bak með þeim afleiðingum að háls drengsins sveigðist aftur á bak og hann átti erfitt með andardrátt.
Segir í ákærunni að með þessu hafi maðurinn sýnt drengnum vanvirðandi háttsemi, yfirgang og ruddalegt og ósiðlegt athæfi.
Í viðbótarákæru yfir manninum fer faðir drengsins fyrir hönd sonar síns fram á eina milljón í miskabætur.