Plokkvinafélag hefur verið stofnað á Selfossi en tilgangur þess er að plokka upp allt sjáandi rusl á víðavangi í bæjarfélaginu. Fjölmargir hafa skráð sig í félagið.
Plokkvinafélagið var formlega stofnað í gær og fóru félagar út í tvo klukkutíma til að plokka rusl en það var eins konar forskot á sæluna fyrir Stóra plokkdaginn, sem er í dag. Elín Birna Bjarnfinnsdóttir, yfirplokkari í Árborg, sem býr á Eyrarbakka er formaður félagsins og verndari nýja félagsins er Einar Bárðarson, Selfyssingur og einn af forfeðrum plokksins á Íslandi.
En plokkvinafélag, hvað þýðir það?
„Við ætlum að reyna að fá fleiri með okkur út að plokka. Þetta er bara rosalega skemmtilegt og gefandi, við hvetjum alla til að koma og vera með”, segir Elín Birna en hún er ótrúlega dugleg að plokka.
„Ég hef nú labbað mikið í gegnum tíðina og fór að sjá drasl úti um allt. Ég byrjaði með litla poka og svo hefur það vaxið þvílíkt, margir pokar á dag stundum. Reynum bara að gera landið okkar fagurt,” bætir Elín Birna við.
Hún segir rusl alltof víða.
„Já, það er alltof mikið, því miður, við verðum bara að fara að gera betur, það er bara svoleiðis”.
En þeir, sem vilja ganga í félagið, hvernig bera þeir sig að?
„Þeir geta t.d. bara komið hingað í Zoon á Selfossi hjá henni Jónu og skráð sig þar eða haft samband við mig, ég er í símaskránni,” segir Elín Birna.
Verður þá Árborg hreinsasta sveitarfélag landsins þegar þetta er allt komið í gegn?
„Já, ég ætla að vona það, það væri frábært framtak hjá okkur öllum hérna,” segir Elín Birna hlæjandi.