Mojtaba Khamenei, æðsti leiðtogi Írans, sagði í dag að Bandaríkjamenn geti aldrei aftur notað ríkin við Persaflóa sem skjól fyrir herstöðvar sínar. Þetta sagði hann í skriflegri yfirlýsingu sem fjölmiðlar greindu frá. Khamenei hefur ekki sést opinberlega síðan hann tók við embætti af föður sínum sem var drepinn í árásum Bandaríkjamanna og Ísraela í upphafi stríðsins.
Íranski byltingarvörðurinn sagðist í dag hafa skotið niður bandarískan dróna og skotið að bandarískri herþotu sem reyndi að komast inn í íranska lofthelgi. Ekki kom fram hvenær það hefði gerst. Bandaríkjamenn sögðust í gær hafa ráðist á íranskar eldflaugastöðvar.