Paul Watson-samtökin hafna kröfu Faxaflóahafna um að flytja skipið Bandero sjálf brott úr Akraneshöfn og þvertaka fyrir að leggja út fyrir kostnaði af drætti þess þaðan til Reykjavíkur vegna yfirvofandi illviðris.
Staðsetning þess á Akranesi sé að undirlagi íslenskra yfirvalda, sem af pólitískum ástæðum hafi valið að fara þá leið. Skipið sé á Íslandi í óþökk samtakanna og því hafi verið óhætt í Reykjavík áður en yfirvöld ákváðu að flytja það óumbeðið til Akraness. Samtökin muni þó ekki standa í vegi fyrir nauðsynlegum aðgerðum en taki engan þátt í þeim.
Gísli Jóhann Hallsson yfirhafnsögumaður Faxaflóahafna sendi í morgun bréf til Bjarna Más Magnússonar lögmanns samtakanna þar sem krafist var að skipstjóri og áhöfn yrðu komin um borð fyrir klukkan eitt í dag.
Þess væri krafist svo unnt væri að sigla skipinu til Reykjavíkur með aðstoð dráttarbáts og hafnsögumanns eða að eigandi veiti tafarlaust og ótvírætt samþykki fyrir að það verði dregið sem mannlaust fley á kostnað eiganda.
Verði því ekki sinnt umsvifalaust neyðist Faxaflóahafnir til að koma skipinu í skjöl á ábyrgð og kostnað eiganda. Paul Watson-samtökin samþykkja það ekki í svari til Faxaflóahafna, heldur skuli íslensk stjórnvöld bera kostnað af öllu tjóni sem kunni að verða.
Í gærkvöld kom í ljós að enginn skipstjóri var um borð, að því er segir í bréfi Gísla, þegar dráttarbáturinn Magni var sendur til aðstoða við flutning Bandero. Því var ekki hægt að sigla skipinu til Reykjavíkur.
Ekki var heldur vitað hve margir og hverjir voru um borð. Paul Watson-samtökin segjast heldur ekki geta tekið ábyrgð á því enda hafi stjórnvöld sent helstu yfirmenn úr landi. Íslensk yfirvöld tóku yfir stjórn Bandero í júlí eftir að áhöfnin sigldi án heimildar inn fyrir tólf mílna lögsögu landsins og ógnaði öryggi skipverja hvalveiðiskipsins Hvals 9.
Skipið hefur síðan legið við höfn, fyrst í Reykjavík og síðan á Akranesi. Samgöngustofa aflétti farbanni yfir Bandero í ágústlok og skömmu síðar var sá síðasti úr áhöfninni sendur úr landi .