Alls voru 59 mál skráð í kerfum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Tveir gista fangageymslur lögreglu.Í umdæmi lögreglustöðvar 1, sem sinnir meðal annars miðborginni, óskaði leigusali eftir aðstoð lögreglu vegna leigutaka hans sem væri til vandræða.„Þegar lögregla kom á vettvang reyndist leigutakinn vera sofandi inni hjá sér og vildi leigusalinn að lögregla myndi aðstoða leigutakann um að leita sér læknisaðstoðar vegna áfengissýki. Ekki mál fyrir lögreglu,“ segir í skeyti lögreglu í morgunsárið.
Óvenjulegt útkall: „Ekki mál fyrir lögreglu“